Verði ljós - 01.12.1896, Blaðsíða 23

Verði ljós - 01.12.1896, Blaðsíða 23
199 skynsemi og mannlegur lærdómur má sjer í rcligións sökum. Jeg lieiðra þau hvorutveggju, því þau eru stór og dýrmæt guðs gáfa. Jeg veit, að þau bæði eiga og hljóta að brúkast sem óniissanleg verk- færi, til að geta sem rjettast útlagt heilaga ritningu, en þau hljóta þá samt að búa í þeirri sálu, sem uppfylt er af djúpri auðmýkt fyrir liöfundi ritningarinnar, annars er ofurhætt við, að maður nái ekki með þeim einsömlum þeim sanna og guði verðugasta skiln- ingi á henni. En af því heimurinn hefir hingað til verið ríkari af skynsemi og lærdómi en guðlegri auðmýkt, hafa þó margar trú- arbragðaþrætur á öllum öldum uppkomið; því sá sanni visdómur, sem Jakob (3, 17.) lýsir, á ei heima nema í auðmjúkum auda að vitni þess hávísa Salómons (Orðskv. 11,2.), og sjálfur Davíð kon- ungur játar sig þá hið fyrsta hafa lært guðs rjettindi, nær hann auðmjúkur gjörðist (Sálm. 119, 71). Þess vegna leyfi jeg mjer þá að álykta þctta mál með orðum postulans Páls til Agrippa kon- ungs (Pstgjb. 26, 29): Eg æski þess af guði, hvort það brestur í miklu eður litlu, að ckki einasta Yðar Hávelborinheit, hcldur og svo allir aðrir, sem um þvílíkt efni höndla, — já sjálfur jeg með — gætu orðið öldungis sama sinnis, sem þessi stóri og lærði postuli var! En — hvílíkur var hann? Hann vildi sjer af engum lær- dómi hrósa, neina lærdóminum um „Jesúm og liann krossfestan“ (nfl. það að hann var píndur og deyddur fyrir hans og allra synd- ir) og áleit enga speki til jafns við þann lærdóm takandi. Nú er þá alleinasta eitt eptir, þetta: að biðja hiö innilcgasta og auðmjúkasta um Yðar Hávelborinheita náðuga umburðarlyndi og fyrirgefningu: «) á því vogaða fyrirtæki, að senda þetta upplcast með öll- um þoss ófullkomleikum undir Yðar Hávelborinheita augu, í þeirri von, að virðið það yfirlesturs; 13) á mínum máske hjer og þar ósvinnari orðatiltækjuui en vera skyldi, hvað orsakazt hefir sumpart af þoss í Yðar Hávelbor- inheita tilskrifi inngefna læknisdóms öfugu verkun (sem eg í inn- ganginum ávikið hefi), sumpart af minni sterku mótsettu sannfær- ingu og sumpart af breyskleika míns náttúrufars. í fullkomnu trausti, þess að jeg verði um þessa mína auðmjúku bæn heyrður, undirskrifa jeg með sannri og djúpri lotningu Yðar háeðla Hávelborinheita auömjúkasti undirgefinn þjenari Möftruíelli þ. 12. Maii 1821. T T-

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.