Verði ljós - 01.12.1896, Síða 17

Verði ljós - 01.12.1896, Síða 17
193 kveikt í vindli þegar kann gekk heiman að frá sjer til þess að skoða húsið sitt nýja. Hann var mjög hugsandi allan fyrri hluta dagsins. Eptirmið- dagsbilið Jcom annar lögregluþjónninn heim til gamla Knúts, til þess að spyrja cptir Einari og biðja hann um að lcoma aptur i rjettinn, því nú væru þeir líklega búnir að flnna sökudólginu. Knútui gamli kallaði til Einars, bað hann að koma til sín snöggvast og mælti við hann: „Mig langar til að biðja þig um að muna eptir þessu orði drottins, þegar þú kemur fyrir rjettinn: „Að hverju gagni kæmi það manninum, þótt hann eignaðist allan heiminn, ef hann liði tjón á sálu sinni.““ Einar svaraði eklci mcð einu orði. Þegar hann kom í rjett- arsalinn heilsaði fógetiun honum vinalega. Þar sá hann einnig inúr- aragarminn, sem hanu hafði rokið úr vinnunni. Og liann leit ekki blíðum augum til Einars. „Jú, jeg á náttúrlega að hafa gjört það. Reyndu bara einnig að fá mig dæmdan fyrir að hafa lcveikt í húsinu. Það getur aldréi verið nema þægilegt fyrir þig,“ sagði múrarinn. „Þegiðu!“ mæltu lögregluþjónninn byrstur; en fógetinn sagði nú frá því, að múrarinn hefði sjezt á vakki kringum húsið eptir kl. 9 um kvöldið; tveir menn væru boðnir og búnir til að sverja það; þessir sömu menn hcfðu líka áður keyrt múrarann hafa hót- anir í frammi um það, að hann skyldi hefna sín á Einari. Einar stóð fyrst grafkyr og hugsandi. Hann var fölur sem nár í frainan. Tvær raddir börðust í sálu hans. „Segðu ekki frá ncinu,“ sagði önnur þeirra; en hin mælti: „Scgðu frá öllu eins og það er. Að hverju gagni kæmi það manninum, þótt hann eignað- ist allan heiminn, ef hann liðí tjón á sálu siuni.“ „Milli klukkau níu og tíu?“ mælti hann loks með föstum rómi. „Nei, jeg var sjálfur í húsinu optir það; þá var klukkan undir það orðin ellcfu. Og svo er annaö, sem jeg vildi minnast á. Eptir að jeg kom keirn áðan, datt mjer það í hug, að jeg hefi opt gjört mig sekan i þeim óvana, að fleygja frá mjer vindilstúfum, án þess að gæta þess, hvort eldur sje í þeim eða eklci. Og jeg mundi þá líka cptir því, að jeg var vindillaus, er jeg kom heim í gær- kveldi, en reykjandi var jeg, er jeg fór að heiman. En i húsinu mínu lágu hefllspænir rjett fyrir innan dyrnar; það var glaða tungJsljós og þess vegna tók jeg eptir þeim. Já, svo hefi jeg elcki meiru hjer vi$, aö bæta.“ — Það var dauðaþögn í salnum. Allir störðu á Einar.

x

Verði ljós

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.