Verði ljós - 01.01.1897, Síða 8
4
glaður á stað inn í hið óþckta frauitíðarinnar land, og heilsa glað-
ur fjöld samferðamanna minna. Jeg horíi ekki á þokuna, sem hyl-
ur mjer það, sem fyrir framan mig er, en jeg lypti mínum augum
til hinna eilífu fjalla, því nú veit jeg, hver gctur gjört mjer ný-
árið að náðarári. „Mín hjálp kemur frá drotni, sem gjörði kirnin
og jörð“, frá honum, sem er minn faðir á himnum og rikið
og mátturinn og dýrðin tilheyrir. Og hann bið jeg að gefa mjer
og öllum samferðamönnum mínum
gleðileyt nyár í Jesú nafni!
J. H.
Við áramótin.
Það cr nú liðið ár síðan þetta litla blað hóf göugu sína. Það
lagði á stað í Jesú nafni, treystandi sigurkrapti þess málofnis, scm
það hafði sett sjer fyrir mark og mið að berjast fyrir, að hann
mundi halda því uppi og lofa því að líta sól hins næsta árs upp
renna. Það lagði af stað i þoirri trú og von, að þótt dauft væri
útlits í hinni íslenzku kirkju, mundu þó tvö rit, er lielguðu sig að-
alloga málefni kirkjunnar og kristindómsins, geta þriflzt þar sam-
hliða. Og spár þeirra manna, cr í fyrra ljctu þá slcoðuu í ljósi,
að tvö slík blöð mundu aldrei geta þrifizt hjer, hafa sem betur fer
enn ekki rætzt Þau lifa bæði enn, og meira að segja lítur helzt íit
fyrir, að eldri bróðirinn lifi betra lífl en áður og liorfl vonglaðari
fram á við. Bn þá ályktun drögum vjer af því, að ekki heflr eitt
einasta orð heyrzt frá konurn þetta liðna ár um það, hve crfitt væri að
lifa, en sú röddin kvað opt við áður, svo að margir jafnvel voru
farnir að hallast að þoirri skoðun, að hjer mundi aldrei geta þrif-
izt kirkjulegt blað. Og „Yerði ljós!“ getur ekki nema glaðzt yfir
því, að þetta hefir brcytzt. Því „Verði ljós!“ óskaði aldrei að fá
að standa yfir moldurn síns eldra bróður, „Kirkjublaðsins11, og allra
sízt óskar það þess nú, er það virðist hafa sýnt sig, að hjer geta þrifizt
tvö slílc blöð. Eitt af því, scm leiddi til þess, að ráðizt var í að
gefa út þetta nýja kirkjulega mánaðarrit, var sú sannfæring vor, að
það væri ckki holt nje gagnlegt, að kirkja íslands hefði aðeins eitt
málgagn, hvorki fyrir kirkjulíflð í landinu nje fyrir málgagnið
sjálft, og þessi vor sannfæring hefir styrkzt til muna á liðnu ári.
Þess vegna stígur „Verði ljós!“ inn yfir þröskuld nýja ársins enn
kugdjarfara, en það var, er það hóf göngu sína fyrir ári síðan,