Verði ljós - 01.02.1897, Blaðsíða 6

Verði ljós - 01.02.1897, Blaðsíða 6
22 aðalkjarni kristmdómsins og að sá einn er í sannleika kristinn, sem fyrir trúna heíir tileinkað sjer hina guðdómlegu persónu hans og þá friðþægingu og endurlausn, sem hann heíir oss afrckað. Pessi íslenzka kristindómsfræðsla liðinna tíma, sem þannig, með því að leggja aðaláherzluna á rangan stað, hefir látið það verða útundan, sem er og verður aðalatriðið, hún heíir orðið til þess að festa í brjóstum manna þá skoðun, að alt sje að síðustu undir því komið, að maðurinn hegði sjer vel, (þ. e. eins og með sann- girni verður krafizt af syndugum og hreyskum mönnum,) en að hitt sje í sjálfu sjér harla þýðingarlítið, þegar öllu sje á botninn hvolft, hvort hann trúi nokkru af því, sem guðs orð kennir eða engu, þar eð hann sje ekki lakar kristinn fyrir það, — þessa skoðun, sem hvervetna gægist fram hjer heima og lætur til sín heyra á síðustu árum, bæði í ræðu og ritum Loks er að minnast á þriðja höfuðatriðið i starfsemi prostsins, nefnilega sálgæzluna, er ávalt hefir verið talin eitthvert hið vandasamasta af störfum hans, en jafnframt einnig hið blessunar- ríkasta ekki aðeins fyrir andlega heill safnaðarins heldur og prestsins sjálfs. Sálgæzla prestins er í því fólgin, að hann lætur sjer innilega ant um andlegan hag hvers einasta af sóknarbörnum sínum, hvort sem þau eru gömul eða ung, rík eða fátæk, hraust eða lasburða, hvort sem þau leita til guðs húss eða halda sig fjarri því. Bngin sála í söfnuðinum má vera prestinum óviðkomandi, því hann er ekki aðeinsprestursafnaðarheildarinnar, heldur og hvers einstaklings í heildinni, hann má því ekki heldur láta sjer ant um þá eina, sem leita til hans, heldur á hann einnig að láta sjer ant um hina, sem ekki leita hans, sem afrækja prest, kirkju og náð- armeðul. í hverjum söfnuði, hve lifandi sem hann er, eru ávalt einhverjir, sem þannig eru gjörðir, hvort sem það nú er hrumleika að kenna eða sjúkdómi eða tómlæti eða vantrú. Að láta alla þessa menn afskiftalausa, er að vanrækja skyldu sína, því það er skylda prestsins að leita að þeim, sem ekki vilja koma til hans. Eins og frelsarinn forðum sagði við lærisveina sína: „Farið út og gjörið allar þjóðir að lærisveinum mínum“, - þannig segir hann á öll- um tímum við þá menn, er eiga að halda starfi þeirra áfram í heiminum, prestana, hvern í sínum verkahring: Farið út og gjörið hvern einasta safnaðarlim að sönnum lærisveini mínnm; farið út og leitið að hinum hrumu og veiku, sem ekki geta komið; farið út og leitið að hinum ístöðulitlu, sem ekki þora að koma; farið út og leitið að hinum þverbrotnu og kærulausu, sem ekki vilja

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.