Verði ljós - 01.02.1897, Side 10

Verði ljós - 01.02.1897, Side 10
26 var og með eina fremur óþokkalega grein í garð kirkjunnar, er á síðastliðnu ári snemma birtist í einu af blöðum vorum. Yfirskrift greinarinnar var ofurmeinlaus — „Brjefkafli frá gömlum manni til bróður síns“, — en efnið var þess mergjaðra, því höf. vildi fella burtu ýmsa höfuðlærdóma kristindómsins, t. a. m. rjettlætingar-, endurfæðingar- og þrenningarlærdóminn;—minna gat það ekki orðið! En það var ekki svo mjög þetta, sem hneykslaði marga, sem brjef- kaflann lásu, því slíkt hefir opt áður sjezt borið fram á prenti, heldur hitt, að margir þóttust kannast við röddina, sem rödd eins af hinum alþektustu þjónum vorrar — — íslenzku kirkju! Ef svo hefir verið, getur kirkja íslands farið að segja: „Guð varðveiti mig fyrir vinum mínum, en óvini mína mun jeg sjálf annast!“ Þessi miður riddaralega hernaðaraðferð hefir annars lengi tíðkazt á meðal vor, og er kirkjunnar mönnum það sízt láandi, þótt þeir gangi með þögn fyrirlitningarinnar framhjá slíkum árásum hug- deigra manna og hugspiltra. En sama getur enda verið að segja um ýmsar þær greinir, sem nöfn standa undir; það er aldrei til mikils gagns að yrðast við óvitra, þjarka við þá menn um kristin- dóm, sem hafa eiginlega enga hugmynd um, hvað kristindómur er; en því er svo varið með marga þessa, sem gaspra hæst og þykj- ast reka erindi hins „sanna“ kristindóms gagnvart því, sem þeir kalla „kreddu-trú“ og „kirkju-trú“ o. þvíl., að greinir þeirra bera þess áþreifanlega merki, að þeir vita næsta lítið um það, hvað kristindómur er. En þótt kirkjunnar mönnum sje ekki láandi þögn- in gagnvart slíkum mönnum, þá má kirkja íslands sízt af öllu verða „þagnarinnar land“, því að nóg eru umtalsefnin þar fyrir utan og tímarnir heimta það, að kristnir menn ræði sín málefni, hver öðrum til uppbyggingar og styrkingar í trúnni, voninni og kærleik- anum. Hætti þeir að tala um sín málcfni, tekur svefninn við apt- ur; en þar sem hinn andlegi svefn er, þar er hinn andlegi dauði opt nærstaddur. Kirkjunnar menn þurfa ekki aðeins að hafa vakandi auga á óvin- um kristindómsins, heldur þurfa þeir oinnig að hafa vakandi auga á miður heppilegum kirkjulegum stefnum, sem hingað koma, hvort sem það nú eru erindrekar páfakirkjunnar eða það er „sáluhjálparherinn“ svo nefndi, sem leitast við að afla sjer áhangenda. Ekki svo að skilja, að vjer höfum nokkra ástæðu til að hræðast starf þessara manna, eins og það væri hættulegt fyrir vora ev.lút. kirkju; en það er engu að síður einföld skylda vor við þá kirkju, sem vjer tilheyr- um, að vjer tökum því ekki með þökkum eða þögn, að þeir starfl

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.