Verði ljós - 01.02.1897, Page 12

Verði ljós - 01.02.1897, Page 12
28 Sjera Sæmundur Jónsson, prófdBtur í Árneaþingi, f 8-/ii. 1896. áT/2) ijljg/engi munu menn í minnum hnfa ógna-Ar í Árnesþingi. Mun og minnisstætt mörgum verða hjeraðs-hrunið í Hraungerði. Harður harmkippur um hjerað fanst, er að foldu fjell fagur viður. Öll var æfi hans ólík næsta ógna-ári þvi, er yfir kom. Ókyrð var á öllu, ljek á iði jörð; uinhverfðiat alt i eina beudu. Eu alia æfi hjá öðlingi rósemi bjó rik og reglan fasta. Titruðu tiudar, þó að traustir sýndust; hrundu hainrar, þó að harðir væru. En trygð hans traust, þar sem tók hann þvi, var það bjarg, sem ei bifazt gat. Dunur og dynkir djúpt i jörðu ægðu með ógnum frá undirheimum. Yndi var öllum hans unaðsraddar hljómur hreimsætur að hausti fram. Lituðust iindir leir og gruggi, ólguðu aurstokknar yfir bakka. En ljúft fram leið lind hans æfi, himiu speglandi i hreinum bárurn. Eigi’ í óðastorm, oigi’ í landskjálfta, eigi í eldi var andi guðs; hann í blíðum blæ bærðist hljóðlega. Svo var sífelt hjá Sæmundi. Eigi með ofsa eða atgangi stýrði hann í straumi á stóru fari. Hægt og hljóðlega fór hann að öllu; fjekk þó fram komið töstum ráðum. Eigi hátt og hvelt, svo að heyrðist viða, friðmál haun flutti frelsara sins. Átti kirkja Krists þó ei kærri vin, hollvin hreinni, af hjarta dyggan. Föður blíðari, bróður þýðari, traustvin tryggari má trauðla finna. Lofsælt ljftfmenni, lipurt prúðmenni, vandað valmenni,— það var hann æ. Komin er nú kyrð, — hún var kær honum; — kyrð er í jörð, kyrritt hjörtu! Unaðs-ár var hans æfi hjer. Hvað mun þá hinnig í himinsölum? Y. B.

x

Verði ljós

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.