Verði ljós - 01.02.1903, Qupperneq 10

Verði ljós - 01.02.1903, Qupperneq 10
26 VERÐI LJÓS! klerkar á Ítalíu hafa gengið inn í Valdensa-kirkjuna eða eins og hún er kölluð þar „Chiesa evangelica11. Sömuleiðis er það eftirtektar- vert, að fyrv. katólskur prestur dr. O’Coúnor gat skýrt frá því fyrir nokkrum árum, í tímariti sínu „The converted Catholic", að á 16 árum hefðu 40 katólskir prestar yfirgefið katólsku kirkjuna og verið teknir upp í evangelisku kirkjuna af honuin. Hór má og vísa til hinnar heimsfrægu bókar Charles’ Chiuiquy: „Katólskan afhjúpuð“ (sem Stor- johann prestur hefir nýlega þýtt á dönsku), er sjmir hve mikil umbrot eiga sór stað víða meðal katólskra klerka. Þótt nú hreyfingar eins og þessar sóu alls ekki þýðingarlausar, eru þær þó enn sem komið er ekki þess eðlis, að ákveðnar framtíðar- vonir verði á þeim bygðar. Vér segjum framtfðarvonir, því að vér prótestantar hljótum að lfta svo á, að framtíðin heyri oss til. Fyr eða síðar mun katólska kirkjau annaðhvort hverfa inn í prótestantakirkjuna eða verða svo gagnsýrð af evangeliskum siðbóta-meginreglum, að húu getur haldið áfram að hafa sögulegt verkefni að leysa af hendi, við hliðina á evangelisku kirkjudeildunum, meðal þeirra þjóða, sem hún hefir drotnað yfir frá alda öðli. Sú katólska, sem ekkert hefir lært og engu hefir gleymt, muu ekki geta til lengdar stemt stigu við hinum tæru straumum menningarinnar, og hlýtur uin síðir að gefast upp fyrir hiuum sjálfsögðustu kröfum hinnar trúarlegu meðvitundar. Bæði menn- ingar- og trúar-meðvitund vor fullvissar oss um þetta. Betri vonir mætti ef til vill byggja á hreyfingu þeirri f Austurríki, sem kend er við einkunnarorðin, sem hún hefir valið sér: „Burt frá Róm!“ Þessi hreyfing: „Burt frá Róm!“ hefir þegar náð mjög mikilli útbreiðslu og orðið til þess, að menn hafa svo þúsundum skiftir sagt skilið við rómversku kirkjuna í stórhópum. Um andlegt gildi hreyf- ingarinnar er þó sem stendur mjög svo erfitt að gera sér ákveðnar hugmyudir. Því verður ekki neitað, að hún kemur svo fyrir sjónir, sein bæði pólitík og þjóðernisrígur eigi hér jafnframt hinu trúarlega sterkan þátt f hreyfingunni, án þess vór þó viljum með því segja, að hið trúarlega eigi miustan þátt í heuni. En til fulls verður ekki um það dæmt, livers virði öll þessi lireyfing er, fyr en öldurnar liafa aftur tekið að lægjast. Það sem þar á móti á heimtingu á mestri athygli og, vér bætum því við, hjartanlegri hluttekningu um allan heim mótmælenda, er hin stórmerkilega hreyfing, sem byrjuð er innan katólsku prestastéttarinnar áPrakklandi, sem ekki að eius þegar er orðin harla víðtæk, heldur virðist eiunig geyma f sér vænlega mögulegleika með tilliti til ókomna tímans. Það er engin furða, að þessi hreyfing, sem hér mun verða gerð grein fyrir stuttlega, er frain komin einmitt á Prakklandi. Hún er í fullri samhljóðau við það, að frakkneska kirkjan, „elzta dóttir rómversku kirkjunnar11, hefir frá fornu fari bæði margsinnis vísað á bug yfirgangi rómversku kirkj-

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.