Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.06.1912, Qupperneq 3

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1912, Qupperneq 3
HYPATIA. 123 elskandi, sem veitir öllu náð sína — og því,þá ekki þér líka, hinn lítiltrúaði? Líttu á þessa fuglamergð — án hans vilja fellur enginn þeirra til jarðar. Og ert þú ekki meira virði en marg- ir smáfuglar — þú, sem guð hefur látið son sinn deyja fyrir? Jú, vinur minn, við verðum að fara út og líta í kringum okkur, ef við viljum sjá, hvernig guð er útlits. Ef við þráumst við og horfum altaf inn á við og leggjumst í heila- brot um það sem oss er áfátt, förum vér að búa guð til eftir okkar eigin mynd, og ímynda oss, að vort eigið myrkur og harðneskja hjartn- anna sé fyrirmynd ljóssins og elskunnar, sem í honum býr.« »Þú talar fremur sem heimspekingur en sem iðrandi trúmaður,* svaraði Áfúgus. Hvað mig snertir, finn eg, að eg þarf að ransaka mig innra meira en ekki minna en eg hef gert. Dýpri sjálfsprófun og enn meiri fjarlæging — það er það sem eg þrái. Sérhver hefur sína köllun og einn verður að haga lífi sín á þenn- an veg — annar á annan veg. Hinar andlegu venjur, sem við migfestust, meðan eg starfaði í heiminum, loða við mig, hvað sem eg geri. Eg get ekki að því gert að athuga framferði annara, aðgæta lundarfar þeirra, ráða ráðum þeirra og grafast eftir, hvernig þeim muni reiða af með þau. Hvert orð og atvik í þessum litla söfnuði snýr huga mínum frá því eina nauð- synlega.« *>Og þú ert spaki maðurinn í heiminum, sem prófar hjörtu annara og rannsakar þitt eigið. Hefur þú ekki fundið, að maðurinn hefur eigi að eins gráðugan maga, heldur einnig spilt hjarta? Margan mann hef eg séð, sem flýtti sér svo að umflýja óvini sína, að hann gleymdi að loka hjarta sínu fyrir öðrum óvinum enn verri, sem vildu hreiðra um sig í hjarta hans.. Margur munkurinn breytir um stað, en losast þó ekki við kvalirnar í hjarta sínu. Eg hef þekt þá suma, sem hafa orðið að lifa af hugsunum hjartna sinna í einverunni, urðu fullir örvænt- ingar og steyptu sér fyrir björg eða ristu sig á hol til þess að losast við þær hugrenningar, sem einn einasti félagi, ein einasta vinarrödd hefði getað frelsað hann frá.« Arseníus hristi höfuðið. »Getur verið,* svar- aði hann. »En því er öðruvísi varið með mig. Eg hef enn þá meira að játa, vinur minn. En'd- urminningarnar frá heiminum elta mig æ meir og meir með degi hverjum. Og þær ætlaði eg þó að flýja. Hallirnar á hæðunum sjö — stjórnvitringarnir þar og hershöfðingjarnir, vélar þeirra, sigrar og ósigrar — alt þetta svífur mér sífelt fyrir hugskotssjónum — sífelt, þó eg þrái það ekki, þó það ginni mig ekki eins og Ijósið fluguna, sem hefur sviðið sig á því áður — það heldur mér alt í óslítandi töfraböndum, og úr þeim læðingi losast eg aldrei fyr en eg fer í einhverja fjarlæga eyðimörku, þaðan sem eng- inn á afturkvæmt.* Pembó brosti. » Aftur segi eg: þetta er spaki maðurinn, sem prófar hjörtun. Og hann vill feginn flýja úr litlu Láru, og flýja út í einver- una, þar sem hann gæti losast við þær hug- renningar, er kvelja hann hér. Og þú vilt los- ast við áhyggjur af öðrum mönnum. Það er betra að hafa áhyggjur af öðrum en af sjálfum sér. Betra að hafa eitthvað til að elskaoggráta yfir, heldur eh kúra einmana í hellisskúta —og verða þar sinn eigin guð, eins og sumir, sem eg þekki.« »Veiztu hvað þú ert að segja?& sagði Ar- seníus í fáti. »Eg segi, að maður slíti sig frá öllu, sem gerir mann kristinn, ef maður dregur sig út í einveruna — frá lögmálinu, hlýðninni, bróður- elskunni, afneituninni, — frá samfélagi hinna heilögu.« *Hvernig þá?« spurði Arseníus. »Hvernig getur þú haft samfélag við þá, sem þú getur enga elsku sýnt? Og hvernig geturðu sýnt elsku þína, nema með því að gera verk elskunnar?« »Eg get að minsta kosti beðið fyrir öllu mannkyninu dag og nótt. Er ekkert rúm fyrir það í samfélagi hinna heilögu?* »Sá sem ekki getur beðið fyrir bræðrum 16_

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.