Nýjar kvöldvökur - 01.06.1912, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1912, Síða 12
132 NÝJAR KVÖLDVÖKUR í herberginu, greip nú með geðshræringu hatt sinn af borðinu og mælti: »Eg er nú kominn að raun um, að það er árangurslaust fyrir mig að tala um mál þetta við þig, og að eg verð sjálfur að ráða fram úr því, þótt eg satt að segja viti ekki, hvern- ig eg á að fara að því. En það ættir þú þó að geta skilið, mamma, að þegar eg lofaði að sjá’j um stúlkuna, hélt eg hún væri fárra ára gamalt barn.f? »Hvað sem þú hefur haldið, kæri Miles, þá hefur þú hagað þér óviturlega, eða hvað hafðir þú að gera með barn?« sagði frúin kuldalega. »Rað hefði eg getað tekið heim til mín eða komið því fyrir, en það er alt erfiðara með 18 ára stúlku.« »Kæri Miles, reyndu að venja þig af því að vera svona höstugur í máli við mig,« kveinaði frúin, »mér hefur mikið versnað í höfðinu síðan þú komst. Tompson læknir hefur ávalt varað mig við geðshræringum. Taugar mínar þola þær ekki. Það er nauðsynlegt fyrir mig að hafa kyrð og næði,' eigi mér að líða sæmilega vel. Svona þras þreytir mig ótrúlega mikið, og þá get eg ekki sofið á nóttunni. Eg finn bezt sjálf hvað mér líður.« Milis leit glottandi til móður sinnar, sem svo notalega hafði búið um sig í hægindastól- num. Hann hafði oft langað til að segja móð- ur sinni, að hún alls ekki vissi hvað þreyta væri og það sem hún mest þarfnaðist væri að hafa eitthvað að gera — lifa eigi stöðugt í algerðu iðjuleysi. En hann vissi að það var með öllu árangurslaust að tala um slíkt, og því þagði hann nú sem fyrri. »Jæja, þá er bezt að eg fari, mamma, og ónáði þig ekki meira,« sagði hann vingjarn- lega. »Mér fellur það illa, hafi eg gert þér gramt í geði, en eg leitaði til þín, af því að eg hélt að þú mundir vilja hjálpa mér.« Síð- ustu orðin sagði hann innilega og næstum með biðjandi hjóðfalli, sem var þó ólíkt lækn- inum að tala svo, því venjulega var hann ör- uggur og hafði fult vald yfir sjálfum sér. — Móðir hans hvorki tók ekki eftir breytingunni á róm hans, né skildi hve hugklökkur sonur hennar var. Hún hélt áfram sínum leikkonubrag lagði augun aftur og var mjög þreytuleg í öllu látbragði, »Vðrtu sæll, Miles, þig angrar það líklega einhverntíma, að þú hefur ekki sýnt veslingn- um henni móður þinni meiri nærgætni og umönnun. — En það er nú ekki vert að tala meira um mig, eg vona að þú finnir einhver ráð til þess að losast við stúlkuna. Ef þú vilt fara skynsamlega að ráði þínu, og gefa ráðum móður þinnar nokkurn gaum, þá giftu þig henni og aldu hana svo upp, að hún verði fyrirmyndar eiginkona.« Lækninum hnikti við. Þetta var í annað sinn sem honum var ráðlagt að giftast þessari einstæðingsstúlku, sem orðin var hans hand- bendi. Hann gegndi móður sinni engu, en laut ofan að henni og kysti hana til málamynda og hraðaði sér svo út meðan síðustu orð hennar brutust um í huga hans. »Hann skyldi giftast henni, giftast þessu hálfgerða óskemtilega barni, sem hann enga tilfinningu hafði fyrir aðra en meðaumkun blandaða með nokkurskonar fyrirlitningu. — Það væri þó sannarlega til ofmikils mælst. En þótt honum þætti þessi tillaga bæði heimsku- leg og móðgandi fyrir sig, gat hann þó ekki hrundið frá sér umhugsuninni um hana. Mand- ers hafði ráðlagt þetta, af því að það væri eðlilegasti og beinasti vegurinn til þess að sjá stúlkunni farborða og móðir hans hafði af svipuðum ástæðum ráðið til hins sama, og J>egar tvær manneskjur, jafnólíkar og Manders og móðir hans, höfðu komizt að sömu niðurstöðu, var hún varla svo mikil fjar- stæða, að ekki mætti um hana hugsa. »Giftast henni og ala hana upp til þess að verða fyrirmyndarkona,« tautaði hann með sjálfum sér, og hallaði sér afturábak í vagnin- um, þegar hann ók heim frá móður sinni; og hann fór að hugsa um hve miklum breyting- um þessi óviðfeldni ^inglingur yrði að taka

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.