Nýjar kvöldvökur - 01.06.1912, Blaðsíða 12
132
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
í herberginu, greip nú með geðshræringu hatt
sinn af borðinu og mælti:
»Eg er nú kominn að raun um, að það er
árangurslaust fyrir mig að tala um mál þetta
við þig, og að eg verð sjálfur að ráða fram
úr því, þótt eg satt að segja viti ekki, hvern-
ig eg á að fara að því. En það ættir þú þó
að geta skilið, mamma, að þegar eg lofaði að
sjá’j um stúlkuna, hélt eg hún væri fárra ára
gamalt barn.f?
»Hvað sem þú hefur haldið, kæri Miles,
þá hefur þú hagað þér óviturlega, eða hvað
hafðir þú að gera með barn?« sagði frúin
kuldalega.
»Rað hefði eg getað tekið heim til mín
eða komið því fyrir, en það er alt erfiðara
með 18 ára stúlku.«
»Kæri Miles, reyndu að venja þig af því
að vera svona höstugur í máli við mig,«
kveinaði frúin, »mér hefur mikið versnað í
höfðinu síðan þú komst. Tompson læknir hefur
ávalt varað mig við geðshræringum. Taugar
mínar þola þær ekki. Það er nauðsynlegt fyrir
mig að hafa kyrð og næði,' eigi mér að líða
sæmilega vel. Svona þras þreytir mig ótrúlega
mikið, og þá get eg ekki sofið á nóttunni.
Eg finn bezt sjálf hvað mér líður.«
Milis leit glottandi til móður sinnar, sem
svo notalega hafði búið um sig í hægindastól-
num. Hann hafði oft langað til að segja móð-
ur sinni, að hún alls ekki vissi hvað þreyta
væri og það sem hún mest þarfnaðist væri
að hafa eitthvað að gera — lifa eigi stöðugt
í algerðu iðjuleysi. En hann vissi að það var
með öllu árangurslaust að tala um slíkt, og
því þagði hann nú sem fyrri.
»Jæja, þá er bezt að eg fari, mamma, og
ónáði þig ekki meira,« sagði hann vingjarn-
lega. »Mér fellur það illa, hafi eg gert þér
gramt í geði, en eg leitaði til þín, af því að
eg hélt að þú mundir vilja hjálpa mér.« Síð-
ustu orðin sagði hann innilega og næstum
með biðjandi hjóðfalli, sem var þó ólíkt lækn-
inum að tala svo, því venjulega var hann ör-
uggur og hafði fult vald yfir sjálfum sér. —
Móðir hans hvorki tók ekki eftir breytingunni
á róm hans, né skildi hve hugklökkur sonur
hennar var. Hún hélt áfram sínum leikkonubrag
lagði augun aftur og var mjög þreytuleg í öllu
látbragði,
»Vðrtu sæll, Miles, þig angrar það líklega
einhverntíma, að þú hefur ekki sýnt veslingn-
um henni móður þinni meiri nærgætni og
umönnun. — En það er nú ekki vert að tala
meira um mig, eg vona að þú finnir einhver
ráð til þess að losast við stúlkuna. Ef þú vilt
fara skynsamlega að ráði þínu, og gefa ráðum
móður þinnar nokkurn gaum, þá giftu þig
henni og aldu hana svo upp, að hún verði
fyrirmyndar eiginkona.«
Lækninum hnikti við. Þetta var í annað
sinn sem honum var ráðlagt að giftast þessari
einstæðingsstúlku, sem orðin var hans hand-
bendi.
Hann gegndi móður sinni engu, en laut
ofan að henni og kysti hana til málamynda
og hraðaði sér svo út meðan síðustu orð
hennar brutust um í huga hans.
»Hann skyldi giftast henni, giftast þessu
hálfgerða óskemtilega barni, sem hann enga
tilfinningu hafði fyrir aðra en meðaumkun
blandaða með nokkurskonar fyrirlitningu. —
Það væri þó sannarlega til ofmikils mælst.
En þótt honum þætti þessi tillaga bæði heimsku-
leg og móðgandi fyrir sig, gat hann þó ekki
hrundið frá sér umhugsuninni um hana. Mand-
ers hafði ráðlagt þetta, af því að það væri
eðlilegasti og beinasti vegurinn til þess að sjá
stúlkunni farborða og móðir hans hafði af
svipuðum ástæðum ráðið til hins sama,
og J>egar tvær manneskjur, jafnólíkar og
Manders og móðir hans, höfðu komizt að
sömu niðurstöðu, var hún varla svo mikil fjar-
stæða, að ekki mætti um hana hugsa.
»Giftast henni og ala hana upp til þess
að verða fyrirmyndarkona,« tautaði hann með
sjálfum sér, og hallaði sér afturábak í vagnin-
um, þegar hann ók heim frá móður sinni; og
hann fór að hugsa um hve miklum breyting-
um þessi óviðfeldni ^inglingur yrði að taka