Nýjar kvöldvökur - 01.06.1912, Side 13

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1912, Side 13
LOFORÐIÐ. 133 ætti hann nokkuð að líkjast myndinni af konu þeirri, sem stöku sinnum hafði komið fram í huga hans og honum fundizt að hann mundi geta felt sig við sem eiginkonu. Jafnvel þótt Miles Anderson hefði aldrei séð þá konu, sem hann hafði skapað sér mynd af sem eiginkonu, stóð sú mynd honum þó nokkurnveginn skýr fyrir hugskotssjónum. Sú tilvonandi skyldi vera veia Ijóshærð með blá augu, andlitsdrættirnir reglulegir og nettir, hár- ið slétt og strokið aftur með vöngunum frá hinu hreina, hvíta enni, svipurinn sambland af alvöru og mildi, sem hann þekti svo vel frá Maríumyndunum. Hans tilvonandi skyldi vera kvennleg, kunna vel að stjórna geði sínu, geta alstaðar unnið virðing og góðan þokka, vera ástúðleg við mann sinn en alvarleg og hæglát gagnvart öðrum. En hversu ólík þessari draum- mynd var ekki ungfrúin hjá frú Brooks, og læknirinn gat ekki annað en brosað að þeim mikla mismun og hann tautaði við sjálfan sig, ómögulegt! ómögulegt! En ráðlegging móður sinnar og vinar gat hann þó ekki rekið úr huga sér. Hann reyndi að gleyma henni en gat það ekki og eftir viku fór hún að bera ávöxt. íMeinO Abendaraez. Eftir W. Irwing. Efst upp á háum hamri, sem skagar fram úr Rondafjallagarðinum, liggur hinn rammgeri kastali Allóra. Nú er hann rústir einar og haf- ast þar við uglur og leðurblökur. En fyr á tímum var hann ramlega víggirt vígi og vernd- aði hina herskáu þjóð, sem ríkjum réði í Qran- ada, fyrir árásum Máranna. Hinir hraustustu og æfðustu herforingjar höfðu yfirstjórn á hendi í kastala þessum, og á þeim tíma, sem nú um getur, hafði forustuna á hendi Rodrigó de Nar- vaez, jarj í Antiquera. Ró kastalinn lægi á yztu takmörkum landareignar hans, dvaldi hann þar lengstum. Og sökum þess að hann lá þar á takmörkunum, fengu hinir spánsku riddarar oft og einatt tækifæri til að gera áhlaup og að eiga í höggi við hina, því það var þeirra líf og yndi. Eina bjarta og unaðslega sumarnótt lagði jarlinn af stað með riddara í fylgd sinni. Þeir lögðu leið sína meðfram fiallsrótum, ef vera kynni að þeir rötuðu í eitthvert æfintýri. Tungl- -skin var bjart og kvöldsvalinn var farinn að kæla loftið. Hila-steikjandi sólskin hafði verið um daginn, en nú var loftið orðið svalt og hressandi. Reir riðu hægt oggætilega; þar sem þetta var á næturþeli voru öll líkindi til að fleiri færu á kreik í góða veðrinu og gat þá auðveldJega komið fyrir, að njósnarmenn Mára kæmust á snoðir um þá, eða ferðamaður yrði var við þá. Þeir lögðu því leið sína um gjár og gjótur, þar sem skugga bar á, svo hertýgi þeirra skyldu ekki sjást við tunglskinið. Pegar þeir komu að krossgötu, þar sem vegir skift- ust, skipaði jarlinn 5 riddurum að fara götuna til hægri, sjálfur fór hann með hinum 4 hina götuna. Stfgir þessir lágu sinn í hvora áttina, og ef nokkur hætta yrði á ferðum skyldu þeir þeyta hornin. En þessir 5 félagar höfðu skamt eitt farið, þegar þeir heyrðu söng álengdar og sáu mann æðilangt í burtu. Peir földu sig í trjá- lundi nokkrum og biðu komu hans. Maðurinn nálgaðist hægt og hægt. Hann reið stórum, kraftalegum og fjörlegum, stálgráum gæðingi, og glóðu hin fáguðu reiðtýgi í tunglskininu. Riddarinn var Mári og tígulegur sýnum; her- tygi öll og b'úningur hinn glæsilegasti, og sýndi maðurinn, að hann var enginn kotungsson. Hann bar kyrtil og yfir sér hafði hann heklu hárauða úr ágætu damasti, skreytta gulli og gersemum; túrban mikinn hafði hann á höfði með gullspöng að framan; við beltið hékk Damascenar sverð, skrautbúið mjög. A vinstra armi bar hann stóran skjöld og á hægri liendi

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.