Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.06.1912, Qupperneq 21

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1912, Qupperneq 21
GRENIR ÚR SPEKINNAR BÓK. 141 barna, þó að það ætti langt í land að ná sér að fullu fram. Margt af því, sem uppeldisfræð- ingar vorra tíma halda nú fram sem nýjungum í uppeldisfræðinni, er ekkert annað en tekið upp úr Emil. Mörg önnurritgaf Rousseau út, og er fræg- ast þeirra skáldsaga ein: »Heloísa hin nýja.« í því riti taiar hann máli náttúrunnar, og lýsir betur sálarlífi, en nokkur hafði gert áður. í sjálfu sér er efnið sama og í Emil að stefnunni til. Æfisögu sína hefur hann og ritað (»Játningar«); það er mikið rit og frægt og sérstaklega fyrir það, hvað það er berort og hreinskilið. Pegar þessi rit komu út, »Emil« og »Pjóð- félagssamningurinn,« var ákveðið í stjórninni í París, að setja hann í fangelsi fyrir skoðanir þær, er þar væri haldið fram. Flýði hann þá til Svisslands, ættjarðar sinnar, en fékk þar ekki friðland. Ekkert varð úr fangelsun hans, og lifði hann eftir það lengst á sífeldum flækingi frá einum til annars, stundum í París, stund- um annarstaðar. Hann ímyndaði sér að allir ofsæktu sig, og var jafnhræddur við þá, er gerðu honum gott eins og hina, og lifði þannig rauna- legu lífi síðustu ár æfinnar. Hann dó 3. júlí 1778. Enginn maður á 18. öld hefur haft önnur , eins áhrif á eftirtíð sína eins og Rousseau. Hann gerðist talsmaður þess anda, sem braust um í böndum móti einveldinu og spillingunni, aðalsvaldinu og kúguninni, og glæddi vonir mannanna um betri og sælli tíma. Og hann sýndi fram á, hvernig þær vonir ættu að ræt- ast, og lagði ráðin á hvernig það ætti að fara að því. Hann varð talsmaður allrar þessarar ólgu, sem braust um í sálum manna undir skækjuveldi Loðvíks 15., og þótt hann væri baqði undarlegur og með mörgum misfellum, varð hann samt sá, sem teymdi þjóðina með sér, þó seinna væri. »Hann lifði ógæfusömu lífi, því að hann fyrirleit alt og alla, en gat þó ekki lifað nema í skjóli höfðingjanna; hann trúði á guð, en treysti honum ekki; elskaði dygðina en trúði ekki á hana; tilbað sannleik- ann en færði þó lyginni fórnir;« að þessu 'eyti var hann barn aldar sinnar; hann var bráðgáfaður maður, og fann hvað var rétt og gott, en tilfinningamaður svo mikill, að skyn- semin naut sín ekki nema til hálfs. En rit hans og hugsanir hafa verkað svo frjóvgandi um alia Norðurálfuna, að eg efast um að hún eigi nokkrum einum manni eins mikið að þakka eins og honum. J. J.^ Greinir úr spekinnar bók. Á morgni tímanna féll syndin yfir jörðina. Ótölulegar þúsundir ára börðust kraftar Ijóss- ins og myrkranna um valdið yfir sálum mann- anna. Og mennirnir lærðu illvirki, lesti og mann- dráp af kröftum myrkranna. Og þegar sálirnar yfirgáfu jarðneska líkami sína í dauðanum, bundu syndsamlegar hugsanir þeirra og girndir þær við jörðina öldum saman eða leng- ur, þangað til guðdómsneistinn, sem geymist í hverju mannshjarta fékk svo mikinn þroska, að hann gat með hjálp ljóssandanna lyft sér upp til þeirra heimkynna, sem hann er kom- inn frá. Og sálin leit þá yfir þetta gallaða jarðlíf sitt með sorg og angri — og þá sendi drott- inn hana einatt aftur ofan til jarðarinnar til þess að bæta yfir brot sín í nýrri mannveru, læra að varpa af sér oki syndarinnar og hreins- ast og fara fram. Kraftar ljóssins og myrknnna börðust ó- aflátanlega. Pað runnu upp ’heilar aldir, þegar Ijósið breiddist yfir jörðina og margar bundnar sálir drógust upp á við. En það runnu líka upp heilar aldir, þegar myrkrið breidcjist út yfir jörðina og ótöluleg- ar mannasálir hröpuðu langt niður fyrir ofur- efli syndarinnar. En svo rann upp síðasti tíminn, tjminn sem vér nú lifum á. Ljósið barst út yfir jörðina’, og margar létu leiðast af öndum ljóssins, fyrir bænir

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.