Nýjar kvöldvökur - 01.10.1914, Blaðsíða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1914, Blaðsíða 6
272 NYJAR KVÖLDVÖKUR. Hún gekk upp riðið við hönd Hughs og sveipaði möllinum að sér. Á eftir henni komu O’Sheara og þernur hennar. Rá kom einhver björt vera á móti þeim að ofan frá. Smaragda stanzaði og leit upp fyrir sig undrandi: Það kom þar kona á móti þeim, alhvít sem Ijóssengill með snjóhvítt hár, eins og drotning í limaburði og framgöngu. Hugh stóð þar eins og þrumulostinn — hann slepti Smarögdu og breiddi út faðminn. írska konan færði sig að eyra Smarögdu og hvíslaði að henni aðeins: sRetta er móðir hans.« Rá skundaði Smaragda fram, féll á kné fyrir lafði Isabellu og kysti klæðafald hennar. 24. Göfugar leiðir. Allmikill hópur farþegja hafði hópað sig saman á þilfarinu á einu af gufuskipum þeim, sem fara frá Konstantinópel til Piræus á Grikk- landi á hverjum mánudegi; þeir horfðu til lands og inn yfir bæinn með ærið misjöfnum tilfinn- ingum. Miðdepill þeirra var lafði Isabella í alhvít- um klæðum. Við hlið hennar stóð Smaragda, klædd svörtum sorgarbúningi, en við hina hlið- ina Hugh í ferðabúningi; tvær hinar tryggu ar- mensku þernur stóðu á bak við húsmóður sína. Sóltjaldið var þanið yfir þiljurnar. Pað hafði verið ærið heitt um daginn, og þótt sól væri mikið hnígin til útsuðurs yfir opnu hafinu, hvíldi þó loftið eldheitt yfir sjöhæðaborginni, svo að hver andvari utan af sjónum var hreinasta hress- ing fyrir farþegjana. Gufuskipið lá nærri nýju brúnni og enn sýndi borgin fegurð sína í undurfögrum ljóma. Galata og Pera risu þar upp í glaðasólskininu með mislitum húsum, glampandi rúðum og björtum smáturnum, og var það útsýni óvið- jafnanlega fagurt. Stambúl var sveipuð blárauðri móðu og þunn kvöldskýin svifu yfir bænum og var eins og yndisfögur mær með blæju gagnvart hinum skæra Ijóma útborganna. Hinu- megin við Bosporus sást Skútari, gul og pur- puralituð með fjölda bænhúsa, en fyrir ofan hana sá í Kypresskóginn, dökkan ílits. Hugh horfði á allan þennan Ijóma með döprum huga. Kveðjur og skilnaður! Hann kvaddi nú þetta land, þar sem hann ætlaði að afreka svo mikið, þegar hann kom, en alt þetta, sem hann hafði ætlað að koma fram, var að engu orðið. Kveðjur og skilnaður! Að þrem dægrum liðnum átti hann að sjá Smarögðu í siðasta sinn. Konstantínópel var að hverfa. Pegar skipið kæmi til Piræus, mundi Smaragda fara af þvf. Hún ætlaði til Kolonos til Gurdij- ans föðurbróður síns. Enn einn bátur kom úr landi skömmu áð- ur en akkerum var létt. Dr. Möller kom út á skipið. Hann heilsaði Hugh með handabandi. Hann var líka að yfirgefa Konstantínópel. »Kustanyi Bey bað að heilsa,« sagði hann. »Hvernig líður honum? Eg var orðinn hræddur um að gerræðisbragð hans mundi kosta hann embættið og eg hafi orðið honum til ógæfu.« »Kustanyi Bey er í bezta skapi. Eg hef aldrei séð liggja eins vel á honum. Hann var hjá mér rétt áðan, svo eg hélt eg væri að verða stranda- glópur. Hana nú, þar er verið að draga upp akkerið, og gufuskipið er að færast af stað. Eg hef komið á síðustu stundu.j ^Kustanyi er ánægður, segið þér? Svo það hefur alt farið vel?« • Tyrkneskt stjórnarfar,« sagði dr. Múller; »annars ræðst það oft svo, að það sem bezt er hugsað og undirbúið, fer illa, en léttúðin og gapaskapurinn leiðir til gæfu. Svona fór það méð áhlaupið á höll patríarkans. Um hádegið í dag kom einn af vildarþjónum soldáns til Kustanyi og færði honum þúsund pund að gjöf frá soldáni sem viðurkenningu fyrir dugnað hans. Pér getið hugsað yður, hvað Kustanyi varð glaður og veslings O’Sheara varð sæl. Hún tók óðara peningana til sín. Hún ætlar að borga með þeim skuldir.« Og hvernig stendur á þessu öllu saman? »Soldáninn sjálfur varð dauðhræddur við óhljóð og öskur brunaliðsins, og varð sárfeg-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.