Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Page 10

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Page 10
130 NYJAR KVÖLDV0KUR. á kaf í prótókollana og nærri kafnaður í reikn- ingum og kvittunum. í rauninni hefur hann ekki agnarögn vit i þessu, og botnar ekkert í neinu, en til þess að sýnast það, klemmir hann nefgleraugun fast á nef sér, les nokkrar tölur hátt upp og leggur saman einn dálk eða svo, og tautar við og við á milli: »Rað er ágætt» og setur upp mesta skynsemdarsvip. Sumpart til að villa hann og sumpart til að gefa strákunum tíma til að rífa af sér mestu óhreinindin, fer yfirmaðurinn að halda smálof- ræður um sjálfan sig. Aldrei hefði stofnunin verið í öðrum eins blóma eins og nu. Mann- dauði hefði minkað. (Rað get eg skilið, því að veikustu börnin voru öll dauð fyrir löngu). Og altaf stæðu akuryrkja og dygð nákvæmlega á sama stigi. Rófnafengur hefði verið í bezta lagi og stæði upp á hár í hlutfalli við fram- farirnar í andlegri uppreist fanganna. »Agætt, það er ágætt,« sagði yfirskoðand- inn með diinmri röddu, og hefði þá vel getað komið fram sem æðsti prestur. En hálfur klukkutími er ekki stutt stund, og yfirmaðurinn verður að þrífa til hreinasta smælkis til þess að tefja tímann. »Leyfið mér, herra yfirskoðandi, að leggja hér fyrir yður tvö stórmerkileg skjöl.« Hið fyrra var bréf frá heiðarlegum bónda þar úr sveitinni. Hann þakkaði þar yfirmanni uppeldisstofnunar Hásléttunnar að hann hefði gert duglegan vinnumann úr fimtán vetra strák, Hippolyte Maubue, og kvaðst hann hafa góða ástæðu til að vera ánægður með hann. En þessi heiðarlegi bóndi getur þess ekki, að hann borgar Hippolyte Maubue hlægilega lítið kaup og lætur hann lifa því sem næst á svínamat. Hitt bréfið þefjar af hinni verstu lygi; það er þakklætisbréf frá þessum Hippolyte til velgerða- manns síns, hr. Steins kapteins. Og það mátti ekki seinna vera, sem Steinn kapteinn kom fram með þessi merkisskjöl, því að þrem dögum síðar hljóp þessi Hyppolyte burt úr vistinni, en braut fyrst upp peningaskápinn í svefnher- berginu og hirti þaðan sokkbol troðinn upp með peningum. »Agætt, það er ágætt,« tautar yfirskoðand- inn hvað eftir annað. Rödd þessa manns lá undarlega djúpt, fyrir neðan stóra F. Pað var eins og hann sækti hana ofan í stígvélin sín. Pað var einsog mað- ur heyrði allraneðstu tónana á orgeli urra neð- an undir honum. Loksins er hálfa stundin liðin. Hvort yfirskoðandinn vildi Iíta eftir í stofn- uninni sjálfri? ]ú, það vill hann gjarnan. Auðvitað fær hann ekki að sjá nema tvö herbergi, smiðjuna, þar sem alt glymur og glamrar af hamarshögg' um (það gerir góð áhrif), og burstagerðarhús- ið (»mjög ábatasamt fyrir ríkið, hr. yfirskoðandi«) og var þar sýnt aðdáanleg þolinmæðisverk; það var mynd af forseta ríkisins, gerð úr hross- hári. »Mjög einkennilegt,« drundi djúpa röddin. Alt í einu drundi við herlúðrasöngur. En hvað það var notalegt. Þeir blása Marseille- slaginn. Steinn kapteinn er ekki lengi að teygja yfirskoðandann með sér út á þjóðveginn, og fanst honum þar mikið til um, þegar drengja- flokkurinn heilsaði honum þar með trébyssum sínum. »Horfið —beint fram,« skipaði kapteinninn fyrir svo myndalega, sem hin sífelda ræma leyfði honum. Heræfingar drengjanna voru vndi hans og eftirlæti, og þeir voru myndarlegir að sjá, strákarnir, þar sem þeir stóðu í röðum • nýju blússunum, burstuðum skóm, með her- mannahúfur á höfðum og með leðurbelti yf'r um sig. Yfirskoðandinn getur ekki greint í tutt- ugu skrefa fjarlægð lastafullu og veiklulegu andlitin, heiftúðugu augun, dýrslegu skoltana og útbrotin og kirtlasárin. í fjarlægð og í hóp saman voru þeir alt að því myndarlegir —hrein- ir og glæsilegir eins og nýslegnir túskildingar. Reir voru líka börn þrátt fyrir alt. »Oætið að!... Myndið raðir!... Fánann í hægri arm!... Til hægri!... Byssur á hægri — öxl!...Afram — gakk!« Peir gerðu hreifingarnar með mestu ná- kvæmni, Bumburnar duna. Lúðrarnir blása

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.