Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Page 12

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Page 12
132 NYJAR KVÖLDVÖKUR. bar sama árangur, þeir fundu ekkert. Þá duttu Tuma í hug orð Jóa: »undir krossinum.« Það hlaut því að vera þar í nánd, *því það var ó- mögulegt að geymslustaðurinn væri í klöppinni undir klettinum. Þeir settust nú niður að hvíla sig, en að vörmu spori spratt Tumi upp aftur. Hann hafði tekið eftir því, að leirinn var mest troðinn á einum stað. Þeir fóru því að grafa þar ofan í leirinn, Tumi með hnífnum sínum, en Huck kraflaði upp leirinn með fingrunum. Er Tumi hafði grafið svo sem fjóra þumlunga niður, rakst hnífsoddurinn i tré. »Heyrðu til, Huck!« hrópaði Tumi. Nú fór Huck að verða ærið stórvirkur að klóra upp leirinn og Tumi pældi sem ákafast með hnífnum. Eftir stundarkorn komu í Ijós nokkrir borðstúfar; tóku þeir þá upp og kom þá í ljós allþröng klettarauf. Tumi klifraðist þarna niður og skreið svo á fjórum fótum eft- ir Iágum og þröngum göngum og hélt Ijósinu fram undan sér, en Huck kom á eftir. Þessi þröngu göng lágu niður á við og ýmist til hægri éða vinstri, Loks beygði Tumi fyrir hvasst klettanef og hrópaði: »Flýttu þér, Huck! Komdu og líttu á!« Já, þarna lá kassinn í svolítilli holu inni í klettinum. Hjá honum lá tómt púðurhorn, tvær byssur í leðurhylkjum og tvennar eða þrennar mokkasínur, leðurbelti og ýmsir fleiri munir; alt var þetta rennvott af lekavatni. »Loksins náðum við þó í hann!« hrópaði Huck og skein út úr honum gleðin er hann rótaði í gullinu. »Nú hljótum við þó að vera rikir, Tumi!«j »Eg hefi nú altaf verið viss um að við mundum ná í þetta gull fyr eða síðar, enda er hér nú sjón sögu ríkari! Við skulum nú ekki tefja lengi tímann hér, en reyna að komast út með kassann. Ætli við getum lyft honum?« Hann vó á að gizka 25 kiló, að það var með naumindum að Tumi gat tekið hann upp, svo það var óhugsandi að þeir kæmu honum út í heilu lagi. »Mér datt þetta í hug,« sagði Tumi. »Eg sá það um daginn í Draugahúsinu, að þeir fóru ekki svo léttilega með hann. Það var gagn að við höfðum pokana' með okkur.« Þeir flýttu sér nú að láta gullið í pokana og báru þá upp úr klettaraufinni. »Eigum við ekki að taka með okkur byss- urnar og dótið?« spurði Huck. »Nei, við látum það vera hér. Við þurfum ekki á byssunum að halda fyr en við erum orðnir ræningjar, þá koma þær í góðar þarfir. En nú skulum víð komast á stað, við erum búnir að vera hér svo lengi. Það er farið að líða á daginn og eg er orðinn soltinn. Þegar við komum í bátinn, skulum við fá okkur bita og reykja okkur eina pípu.« |T Eftir stundarkorn komu þeir út úr runnan- um með gullbyrðar sínar og lituðust varlega um áður en þeir gengu til bátsins, og er þang- að kom, borðuðu þeir nesti sitt og fengu sér í pipu. Síðan reru þeir heimleiðis og voru glaðir í bragði. Þegar þeir lentu við þorp- ið var orðið dimt. Tumi stakk nú upp á því, að þeir fælu peningana um nóttina á hlöðulofti frú Dou- glas ; skyldu þeir svo koma þangað snemma um morguninn eftir og skifta þeim bróðurlega á milli sín. Tumi fór nú ’ð sækja lítinn vagn sem hann vissi af einhversstaðar, en lét Huck gæta á meðan gullsins. Hann kom aftur að vörmu spori með vagninn; létu þeir af hann gullpokana, huldu þá með gömlum strigadrusl- um og héldu á stað. Er þeir komu að húsi Vallisers gamla, námu þeir staðar til að hvíla sig. En þegar þeir voru að halda á stað aftur, kom Jones gamli út og kallaði: »Hverjir eru þarna!« »Huck og Tumi Sawyer.» »Það var heppilegt! Komið þið nú með mér, drengir, ykkar er beðið með óþreyju. Haldið áfram, eg skal hjálpa ykkur með vagn- inn. Hver skollinn, hann er, svei mér, þyngri en eg bjóst við. Er þetta múrsteinn eða járna- rusl?« »Það er gamall málmur.« svaraði Tumi þurlega. »Já, eg bjóst við því! Þið eyðið meiri tíma til að safna saman allskonar járnrusli,

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.