Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Qupperneq 16

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Qupperneq 16
136 NYJAR KVÖLDVÖKUR. miskunnarlaust, ganga til rekkju milli drifhvítra rekkjuvoða, sem hvergi var á einn einasti at- blettur eða gat, er hann gæti þrýst að hjarta sér sem gömlum tryggum vini! Hann varð að borða með hníf og fork, þurka sér á vasaklút, fást við bolla og diska; líka varð hann að læra það sem honum var sett fyrir og fara t kirkju. Hann varð að tala að heldra fólks hætti, merglaust mál, en mátti ekki lengur viðhafa sín gömlu, kjarngóðu orðatiltæki, enda fanst honum slíkt frámunalega heimskulegt og aula- legt. Hvert sem hann sneri sér, slógu siðmenn- ingarlögin hlekkjum sínum um hann. í dagstæðar þrjár vikur bar hann þjáning- ar sínar með hugrekki píslarvottsins, en einn daginn hvarf hann. Frúin lét leita hans um alt í tvo sólarhringa. Margir heimsóttu hana til að votta henni hluttekningu sína. Menn leituðu alstaðar. Rað var meir að segja dregið fyrir í fljótinu, en alt kom fyrir ekkert, Huck fanst hvergi. Snemma morguns hins þriðja dags frá hvarfi hans, fór Tumi að leita. Hann gekk rak- leitt að nokkrum tóinum tunnum er hrúgað var upp bak við gamla slátrunarhúsið og þar fann hann strokumanninn í einni tunnunni, Hann var rétt að enda við morgunverðinn sinn, sem voru ýmsar matarleifar^ er hann hafði hnuplað sér til og frá. Hann lá endilangur í tunnunni og var í mestu makindum að reykja pipu sína; var hann nú hvorki þveginn né greiddur og var nú kominn í gömlu ræflana, sem hann unni svo mjög frá fornu fari. Tumi vakti hann upp af vökudraumum hans og fór að segja honum frá öllnm þeim raunum, er hann hafði bakað frú Douglas með brotthlaupinu, og skoraði á hann að koma með sér heim til hennar. En þá hvarf hinn ró- legi og ánægjulegi blær af andliti hans. »Nefndu ekki slíkt á nafn við mig,« mælti hann, »eg er búinn að reyna þetta líf til þrauta, og mér er ómögulegt að halda slíkt út. Rað getur aldrei vel farið! Retta er ekki við mitt hæfi, eg er óvanur slíku. Frúin er að vísu ó- sköp góð við mig, en það má einu gilda, eg get ekki unað þessu lífi. Rað er kallað á mig á morgnana á vissri mínútu og er eg þá þveg- inn og nuddaður svo að löðrið spýtist í altar áttir, og kemdur og greiddur svo eg ætla hreint að ærast. Hún vill ekki lofa inér að sofa í eldiviðarbyrginu og svo verð eg að klæðast þessum viðbjóðslega þröngu fötum, sem ætla alveg að gjöra út af við mig —það er eins og ekkert loft komist í gegn um þau. Rau eru líka svo horngrýti fín og hrein, að eg má hvorki setja mig niður eða leggjast niður og því síður velta mér í þeim. Og viltu trúa því að eg man nú bráðum ekki Iengur hvað langt er síðan að eg hefi skrunað mér niður í kjallaraháls — eg gæti bezt trúað því að það væri liðið heilt ár síðan! Og svo á eg að fara til kirkju og sitja þar eins og drumbur, fattur og uppdubbaður, kófsveittur í steikjandi hitanum og loftleysinu. O hvað eg hata þessar hræsnisfullu prédikanir! Maður má ekki svo mikið sem veiða þar eina einustu flugu og því síðurað maður geti tugg- ið sér eina tóbakstuggu til afþreyingar, — og það sem tekur þó út yfir alt er það að verða að pínast með skó á fótunum alla sunnudag- ana út úr gegn. Frúin borðar á vissri mínútu, háttar á vissri mínútu og fer á fætur á vissri mínútu. Það verður alt til að ganga eftir þess- um viðbjóðslegu föstu reglum, svo það er eng- inn von til þess að eg og mínir líkar ^þoli slíkt!« jjj »En svona lifa allir almennilegir menn!« sagði Tumi, »Það er mér eitt og sama. Eg er búinn að segja það, að eg get ekki afborið þetta. Það er þrældómur að vera þannig bundinn. Og svo kemur allur matur svo gott sem af sjálfu sér — og með því móti verð eg ekki lengi að missa matarlystina! Eg verð að biðja um leyfi til að baða mig, já, eg get verið argasta kvik- indi, ef eg þarf ekki að biðja um leyfi til allra skapaðra hluta. Eg verð að tala svo teprulega og hæversklega að eg nenni valla að opna munninn til þess; hefði eg ekki gengið upp herbergi mitt daglega og létt þar á hjarta mínu með heljarorðtökum og kjarngóðum stóryrð-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.