Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 3
NÝJAR KVÖLDVÖKUR • OKT. — DES. 1941 • XXXIV. ÁR, 10. —12. HEFTI Magnús Magnússon: Frú Elínborg Lárusdóttir rithöfundur er fædd á Tunguhálsi í Skagafirði 12. nóvember 1891. Ólst hún upp með foreldrum sínum til sjö ára ald- urs. Þá andaðist faðir hennar en móðir hennar flutti að Villinginesi til Guðrúnar dóttur sinnar, er þar var þá húsfreyja. Var hún þar á vegum systur sinnar og mágs til 15 ára aldurs. Fór þá á kvenna- skóla á Blönduósi og stundaði þar nám í tvo vetur. Haustið 1912 fór hún í Kenn- araskólann. Var þá ætlun hennar að halda áfram námi, en annan veturinn í skólanum veiktist hún og var í febrúar flutt á heilsuhælið á Vífilsstöðum. Þar lá hún lengi mikið veik, eða alls næstum samfleytt 14 mánuði. Dvöl hennar þar varð hátt á þriðja ár. Hún komst þó svo vel til heilsu, að hún hefir ekki kennt þessa sjúkdóms síðan. En að afleiðingum hans býr hún alla ævi. Hún giftist Ingi- mari Jónssyni 18. maí 1918. Varð hann prestur að Mosfelli í Grímsnesi 1922 og gegndi því embætti til 1928, en þá fluttist þau hjónjn til Reykjavíkur. Nú er hann skólastjóri Gagnfræðaskólans. Nýtur skólinn mikils álits undir stjórn hans og þykja jafnvel kennslukraftar við þann skóla einna beztir. Ingimar er gáfaður maður og traustur í skapgerð og gegnir margskonar trúnaðarstörfum. Þau hjónin hafa eignast tvo sonu, Lárus og Jón. Frú Elinborg Lárusdóttir. Frú Elinborg segir sjálf svo frá, að til- viljunin hafi ráðið því að hún fór að skrifa skáldsögur, og að sjálf hafi hún haft litla trú á rithöfundarhæfileikum sínum, en fann hins vegar, að hún hafði gaman af að fást við það og var mjög létt um að skrifa. 19

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.