Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 4

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 4
N. Kv. 146 FRU ELINBORG LARUSDOTTIR Árið 1932 mun fyrsta smásaga hennar, Stjáni, hafa birzt, en svo komu fleiri skjótt á eftir, og á síðustu árum hefir hún verið einhver stórvirkasti skáldsagnahöfundur vor; er hún þó mjög vandvirk, fágar og breytir. Þessar bækur hafa komið út eftir frú Elinborgu: Sögur 1935. Anna frá Heiðakoti 1936. Gróður 1937. Förumenn í þrem stórum bindum á ár- unum 1939—40. Strax og fyrstu sögur hennar birtust vöktu þær mikla eftirtekt. Hlutu þrjár hinar fyrsttöldu bækur hennar mjög góða dóma hjá beztu ritdómendum vorum. Um Förumenn hafa flestir af ritfærustu mönnum vorum skrifað og lokið hinu mestu lofsorði á þessa miklu skáldsögu. Er vafamál hvort nokkur íslenzk skáld- saga hefir hlotið jafn góða dóma þeirra manna, er gleggst skyn bera á skáldskap og list. — Almenningur hefir líka sýnt það, að hann kann að meta skáldskap hennar, því að allar bækur hennar hafa selst mjög vel og munu nú flestar uppseldar. Frú Elinborg ritar hreina og látlausa íslenzku og hefir frá upphafi haft sjálf- stæðan s'tíl, og er það mjög fágætt um byrjendur. Hún er hlutlaus í frásögn sinni og hefir ríka samúð og glöggan skilning á sögumönnum sínum. Sumar persónulýsingar hennar eru prýðisvel gerðar. Má t. d. nefna Andrés malara, Þórdísi á Bjargi og Svein í Förumönnum. — Þá hefir og þetta skáldverk hennar það til ágætis sér, að bregða upp mjög glöggri mynd af ýmsum þjóðháttum, siðum og menningu þjóðar vorrar á síðari hluta 19. aldar og upphafi hinnar 20. Frú Elinborg hefir nú í bili — en vart mun það lengi verða, svo mjög er henm skáldhneigðin í blóð borin — snúið sér frá skáldsagnagerðinni að öðru viðfangs- efni, henni þó náskyldu. — Hún hefir nú lokið við að skrifa ævisögu alþýðumanns, sem lifað hefir nærfellt heila öld. Segir hann sjálfur söguna en Elinborg klæðir hana búningnum og skipar efninu niður, eins og Hagalín gerði um ævisögur þeirra Sæmundar og Hjalta, Verður þetta mikil bók, 329 síður. Maðurinn, sem söguna segir, heitir Jón Eiríksson, og er hann og hinir nafnkunnu Birtingaholtsbræður, Ágúst, Guðmundur og Magnús, bræðrasynir. Jón er fæddur 1854 og er því nú á 87. aldursári. Er hann vel ern að öðru leyti en því, að sjón er al- gerlega biluð. Sá, er þessar línur ritar, hefir lesið yfir handritið og virðist honum svo sem hér sé um merkilegasta rit að ræða, einkum fyrir það, hversu glögga mynd það gefur af háttum, lífi og menningu þjóðarinnar í nærfellt heila öld, og þó einkum af tíma- bilinu frá 1860—90, eða þar um bil. Einn- ig sýnir ævisagan mjög vel baráttu og lífskjör íslenzka alþýðumannsins á þess- um tíma — þessari viðreisnaröld vorri. —- Frásögn Elinborgar er látlaus, án allra óþarfa málalenginga, málið hreint og með viðkunnanlegum og íslenzkum frásagnar- blæ. Reykjavík í júlí 1941.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.