Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 7
N. Kv. KENNIMAÐUR 149 tilbeiðsla og lotning fyrir einhverri hug- sjón, sem nú var týnd og tröllum gefin. Og þessi ást hennar hafði ekki krafizt neins. — En þetta tilheyrði allt liðnum tíma, sem ekki átti afturkvæmt. Maðurinn hennar var ekki lengur sá, er hann hafði verið, en sú breyting, sem hann hafði orðið fyrir, hafði snúizt í öf- uga átt við það, sem hún stefndi að. Bilið á milli þeirra breikkaði með geigvænleg- um hraða, en hvorugt vildi snúa við. Hún hafði alltaf gert sér það ljóst, að maðurinn hennar var enginn skapstilling- armaður, og hún vissi, að hann tók köllun sína alvarlega. En að hann gæti orðið jafnofstækisfullur og þröngsýnn, sem henni fannst raun bera vitni um, hefði hún aldrei ímyndað sér að óreyndu. En mest særði það hana, að hann skyldi láta hana gjalda þess, að hún hafði aðrar skoðanir enn hann, og það á meðan hún breytti ekki á neinn hátt ósæmilega. Hún meira að segja hafði alltaf gert sér far um að breyta eftir því, sem hún vissi sannast og réttast. Hún vissi, að hann átti við marga örð- ugleika að etja í starfi sínu. En var ekki sannleikurinn sá, að hann skapaði sér sjálfur þá örðugleika? Hvernig átti frjáls- lynt og hugsandi fólk að sætta sig við ráðríki hans og túlkun hans á trú- og stefnumálum nútímans, sem flestum eru meira og minna viðkvæm málefni? í við- bót gat hún ekki annað en spurt sjálfa sig: Breytti hann í öllu í fullu samræmi við kenningu sína? Sýndi hann trú sína í verkunum? Er það nægilegt að tala fall- ega? Var hann nokkuð betri og fullkomn- ari en þeir, sem hann deildi á? En þó að þessar spurningar sæktu þrá- sinnis á hug hennar, vildi hún helzt láta þeim vera ósvarað. Hún hafði ekki kjark í sér til þess að horfast beint í augu við þær niðurstöður, sem af því kunnu að leiða. Það var ekki svo að skilja, að hann væri vondur við hana. Hann vildi vera henni góður, en til þess varð hún fyrst og fremst að vera góða barnið. Hann skildi hana ekki eða vildi ekki skilja hana. Hann átti ekki til neinn hita. Ástríki hans var hnitmiðuð umhyggja og ísköld þægi- legheit. Funaheit faðmlög og kossa, sem fengu blóðið til að loga í æðunum, átti hann ekki til, eða vildi ekki eiga. Hann hafði stundum látið það í ljós, bæði beint og óbeint, að einn stærsti sigurinn á leið til fullkomnunar væru skilyrðislaus yfir- ráð andans yfir holdinu; hið minnsta víxlspor á þeirri leið væri synd, sem ekki yrði bætt fyrir. Lengi vel hafði hún beitt sjálfa sig hörðu, til þess að vera á sömu skoðun, en nú gat hún það ekki lengur. í blóði hennar brann æ sterkari þrá eftir því að elska og vera elskuð, heitt og villt. Það var ekki neinn sjúklegur munaður, heldur heil- brigð þrá, sem nú var að vakna til lífs eftir langan svefn og krafðist réttar síns. En þessi vaknandi þrá fann enga full- nægingu. Kall hennar fékk ekki önnur svör en bergmálið af sinni eigin rödd. Skyldi þetta alltaf verða svona? Þetta hefði ekki verið svona erfitt, ef hún hefði haft eitthvað til þess að sökkva sér niður í. Hún gat ekki leitað sér gleymsku og svölunar í starfi, sem tekið gat hug hennar allan. Störf þau, sem hún þurfti að inna af hendi, voru ekki meiri en það, að þau tóku aðeins lítið brot af þeim tíma, sem hún hafði til umráða. Hún hafði vonað, að hann mundi búa sjálfur, svo að hún gæti fengið að helga hug sinn óskiptan þeirri ábyrgð og önn, sem fylgir því að stjórna stóru búi. En það var ekki því að heilsa; það tók um of hugann frá andlegum málum. Hann vildi helga sig þeim heill og óskiptur. Hann gekk meira að segja svo langt, að honum var illa við að hún legði á sig^

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.