Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 8

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 8
150 KENNIMAÐUR N. Kv_ vinnu, sem hún ekki þurfti nauðsynlega að inna af hendi. Hann hafði það til að verða önugur, ef hún skrapp út á túnið til mótbýlisfólksins, til þess að hjálpa þvi við heyskapinn, og hann brást reiður við, þegar hún sagði honum, að hún væri far- in að læra að mjólka. Hann kærði sig ekki um, að hún sliti sér út á því að ganga í skítverkum að þarflausu. Henni féll þetta illa, því að henni féll alltaf svo illa að horfa á aðra vinna, en sitja sjálf auðum höndum. Þetta var sannarlega að vakna upp við vondan draum. Æfintýrið var ekki lengur til. Nú lá hún þarna með tómleika í hjart- anu og gat ekki lengur horft vonglöð fram á við; hún gat aðeins starað saknað- araugum eftir því, sem liðið var, og því, sem átti að verða, en aldrei mundi koma. Hún reis upp og byrjaði að afklæða sig hægt og rólega. Fötin þrengdu svo að lík- amanum, að henni varð þungt um and- ardrátt. Hún hætti ekki fyrri en hún stóð allsnakin og lét sólina skína á líkama sinn, sem var heitur eins og glóð. Svo gekk hún að fossinum, sem hríslaðist fram af þverhníptu bjarginu, stóð þar litla stund hikandi, en gekk svo inn undir úðaregnið og lét það steypast yfir sig. Það var ekki kaldara en svo, að henni fannst það aðeins veita þægilega svölun. Þetta kældi hitann í blóði hennar, og ró og vellíðan færðist um hana alla. Eftir að hafa staðið þar dálitla stund, hljóp hún aftur út á grasið, lagðist þar endilöng og teygði handleggina upp fyrir höfuð. Það var svo notalegt að láta sólina þurrka húðina. Þetta var ekki í fyrsta sinn, sem hún fékk sér svona bað, og henni hafði alltaf fundizt það endurnæra sig og styrkja. Hún velti sér til, svo að sólin gæti náð til þess að þurrka allan líkama hennar. Þegar hún var orðin vel þurr, stóð hún á iætur, hljóp nokkra spretti aftur og fram, til þess að mýkja öll liðamót. Svo fór hún að klæða sig hægt og gætilega, eins og henni væri það raunar þvert um geð að fara aftur í fötin, á meðan veðrið var svona gott. Þegar hún hafði klætt sig til fulls, gekk hún fram á brún skálarinnar. Þaðan var hið bezta útsýni yfir dalinn og hlíðina fyrir neðan. Þar lagðist hún niður og renndi augunum yfir hið fagra útsýni, sem birtist henni. Sólin var farin að halla til vesturs. Á mörgum bæjum sá hún fólk við heyþurrk. í sveitinni má ekki láta nokkurn dag ónotaðan, þegar annirnar eru sem mestar. Á sumum bæjunum var heyið sett upp í sæti, á öðrum var það bundið inn í hlöðu. Hún óskaði sér heim á einhvern bæinn, þar sem hún gæti tekið sér hrífu í hönd og hjálpað til við að taka saman eða binda. Hún öfundaði fólkið af vinn- unni. Ef til vill var það ekki allt í góðu skapi yfir því að mega ekki hvílast á sunnudegi. Ef til vill óskaði það öllu striti norður og niður. Ef svo var, vissi það áreiðanlega ekki, hvað það var að veslast upp af iðjuleysi. Ef það vissi, hvað starfið er öllu öðru betra, til þess að vinna bug á óþægilegum hugsunum, mundi það blátt áfram falla fram og tilbiðja það. Mesta vandamál mannkynsins er það, að sumir hafa of mikið að gera, en aðrir allt of lítið. Hún sá ríðandi mann koma utan bakk- anna. Þegar hann nálgaðist, sá hún, að þetta var maðurinn hennar. Hún and- varpaði, ekki samt beinlínis af feginleik, því að það þýddi að hún varð að flýta sér heim. Hann var óvenju fljótur í ferðum, jafnvel þó að um messufall væri að ræða. Hún reis seinlega á fætur og hélt heim- leiðis, en hún flýtti sér ekki. Maður henn- ar var því fyrir góðri stundu kominn heim á undan henni. Þegar hún kom heim á hlaðið, mætti hún honum.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.