Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 10
152 KENNIMAÐUR N. Kv, hlýddi því boði, en þrátt fyrir það sá hann sér ekki annað fært. Hann hafði hugsað málið vandlega frá því daginn áður, sér- staklega með það fyrir augum, að prestur kynni að skerast í leikinn, og þó að hann væri dálítið smeykur, var hann undir niðri ekki með öllu vonlaus um, að hon- um mundi takast að smjúga úr greipum prestsins. Séra Bjarni bauð honum ekki sæti. Hann varð að gera sér að góðu að standa uppréttur eins og sökudólgur. Prestur vék strax að efninu. — Ég geri ráð fyrir, að þér vitið, í hvaða tilgangi ég hefi boðað yður hingað, byrjaði hann. — Að ég viti, — endurtók Hákon með sakleysissvip, sem veit sig ekki sekan um neitt. Mér er það sannarlega ráðgáta, í hvaða tilgangi þér hafið kallað mig hingað. — Hún Sigríður hérna kom til mín í gærkveldi og var að biðja mig ásjár í máli, sem henni er viðkomandi, og, hm, yður ekki svo lítið líka. Hún heldur því staðfastlega fram, að þér hafið heitið henni eiginorði, en þér munið ætla að hliðra það fram af yður að standa við það loforð. — Á dauða mínum átti ég von, en ekki þessu, sagði Hákon með vel leikinni upp- gerðar-undrun í svip og málfari. Getur þetta verið rétt, að hún haldi því fram, að ég hafi heitið henni eiginorði? — Já, það ber hún ákveðið fram, og ég vona, að þér sjáið sóma yðar í því að eiga stúlkuna, ef svo er. — Vitanlega, prestur minn, — ef svo hefði verið. En sannleikurinn er bara sá, að ég hefi aldrei heitið henni eiginorði. Mér er því óskiljanlegur þessi vitnisburð- ur hennar. — Látum svo vera, anzaði prestur stutt- aralega. Ég hefi ekki sagt, að þér hafið heitið stúlkunni eiginorði, heldur að hún hafi sagt það. En mér skilst, að þér viljið ekki kannast við það að hafa lofast stúlk- unni. — Það er alveg af og frá, prestur minn. — Það kemur raunar í einn og sama stað niður, greip prestur fram í. Þér eruð þó faðir að barni því, sem hún gengur með, svo að fyrir þá sök eina ber yður að giftast stúlkunni og láta yður farast vel við hana. Hákoni spratt sviti á enni, en hann var ekki á því að gefast upp fyrir lítið. — Heyrði ég rétt, prestur minn? Segir hún það, stúlkukindin, að ég eigi krakk- ann, sem hún gengur með? — Já, og ég geri ráð fyrir, að hún hafi til þess fullan rétt. Og enda þótt þér haf- ið ekki heitið henni eiginorði, verðið þér að gera yður það ljóst, að þér hafið kom- ið þannig fram við stúlkuna, að þér kom- izt ekki hjá því að giftast henni. Mönnum verður að skiljast það, að þeir geta ekki skotið sér undan afleiðingum sinna eigin misgerða. — Vissulega, prestur minn, vissulega. Það er sjálfsögð skylda að horfast í augu við afleiðingar sinna eigin afbrota. Ef ég ætti nokkurn þátt í því, hvernig komið er fyrir Sigríði garminum, mundi ég hiklaust gangast við því. En sannleikurinn er sá, að þessi ásökun á mig er ekki á neinurrr rökum byggð. — Þér verðið að færa fram eitthvað til sönnunar máli yðar, mælti prestur. — Ég skal játa, að það er erfitt, því að óneitanlega berast böndin að mér, sagði Hákon og stundi eins og píslarvottur. En ef þér viljið hafa langlundargeð til þess að hlusta á mig, er ég þess reiðubúinn. Prestur hummaði aðeins en svaraði ekki. Hákon tók það sem yfirlýsingu ■ þess efnis, að honum mundi óhætt að leysa frá skjóðunni. Hann sótti því í sig veðrið. — Þér hljótið að viðurkenna, prestur minn, að Sigríður er svona, — hvað við

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.