Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Qupperneq 17

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Qupperneq 17
N. Kv. KENNIMAÐUR 159 — Nei, en það er ekki séð íyrir, hvernig henni reiðir af ennþá. Hin augljósa reiði og fvrirlitning í orð- um og svip konu hans gerði það að verk- um, að hann spurði hana ekki fleiri spurn- inga í bráðina, heldur sagði með áhyggju- hreim í röddinni. — Vertu fljót að fara úr bleytunni, Vig- dís, og komast í rúmið, áður en þér verð- ur kalt. Hún svaraði honum ekki einu orði, leit ekki einu sinni við honum, en hafði fata- skipti í flýti og hraðaði sér út aftur. Nokkrar tilraunir af hans hálfu, til þess að komast betur til botns í þessu máli, urðu árangurslausar. Hann mátti gjöra svo vel og klæða sig, til þess að fá þá vitneskju, sem hann vildi fá. Þessa nótt varð engum svefnsamt á Breiðavaði. Strax um nóttina veiktist Sig- ríður hastarlega, í glitrandi tunglsskini næturinnar þeysti Gunnar bóndi eftir yf- irsetukonu, en þær Ólöf og fru Vigdís viku ekki frá hvílu sjúklingsins. Nokkru fyrir hádegi daginn eftir fæddi hún dreng. En þessi árangurslausa fórn henn- ar á altari ástarinnar opnaði aldrei augun til þessa lífs. Fljótlega varð það líka aug- ljóst, að móðirin mundi ekki þurfa lengi að gráta afkvæmi sitt. Svæsin lungna- bólga hafði gripið hana heljartökum. Frú Vigdís vék ekki frá rúmi hennar fyrr en öllu var lokið. Sjúklingurinn þoldi helzt engan annan nálægt sér. Með hyl- djúpri ástúð og nærgætni fékk hún því áorkað að uppræta úr huga Sigríðar skelfinguna við það, sem tæki við. í fullu trúnaðartrausti hélt hún um hönd frú Vig- dísar, er hún hóf ferð sína yfir í hið ó- þekkta, sem allir verða að kanna fyrr eða síðar. Það var einhver undarlegur óróleiki yf- ir séra Bjarna þessa daga. Hann var lát- inn algerlega afskiptalaus. Ólöf lét hann aðeins hafa mat og kaffi. Þess á milli var hann einn með hugsanir sínar. Ásakanir konu hans vildu ónáða hann óþægilega. Þó vildi hann ekki kannast við annað en hann hefði haft fullan rétt til þess að reiða svipu vandlætingarinnar yf- ir höfði stúlkunnar. Ekki var það honum að kenna, að hún var þessi fáráðlingur. Hann gat svo sem þvegið hendur sínar og sagt: Sýkn er ég af dauða barnsins og móðurinnar. En þó — en þó var einhver nagandi broddur í þessu, sem honum tókst ekki að deyfa. Daginn áður en Sigríður dó, gekk hann inn í herbergi það, sem hún lá í. Hann langaði til að mæla við hana nokkur frið- ar- og hughreystingarorð. Hann var ekki kominn nema rétt inn úr dyrunum, þegar sj úklingurinn kom auga á hann og með oíboðslegri hræðslu í svipnum greip báð- um höndum fyrir augun og kveinaði: — Ég vil ekki sjá hann. Hann sagði, að ég væri syndug og óguðleg manneskja. Ég er hrædd við hann. Hann hafði fundið ískulda læsast um sig við þessi orð sjúklingsins. Hann stóð orðlaus og niðurlútur eins og sakamaður og án þess að geta hreyft sig. Konan hans varð að ýta honum fram fyrir, og hann varð aftur einn með hugsanir sínar. Hann flutti ekki neina ræðu við jarðar- förina. Hann bjóst ekki við neinu fólki. En svo undarlega brá við, að kirkjan var full af fólki, — ungu fólki, sem annars kom ekki í kirkju. Það hafði einhvern veginn kvisazt, hvern þátt hann hafði átt í þessum málum, og það hafði vakið nýja öldu andúðar gegn honum. Það kom ekki vegna þess, að Sigríður heitin hefði verið svo kunn eða vinsæl. Það kom eingöngu til þess að votta, að hún ætti samúð þess óskipta í þessu máli. Og séra Bjarna var sannleikurinn líka vel ljós. Hann skildi, að þessi þögla hóp-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.