Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Page 18

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Page 18
KENNIMAÐUR N. Kv.. 160 ganga breiðdælskrar æsku voru hatröm mótmæli gegn honum og kenningu hans. Honum varð það fyrst ljóst nú, að þessi ógnun var að vaxa honum yfir höfuð, án þess að hann fengi rönd við reist. 25. Skuggar skammdegisins urðu alltaf lengri og lengri. Með jöfnum, sígandi þunga, sem ekki varð umflúinn, lögðust þeir yfir og urðu ekki hraktir burt. Þetta varð langur og dimmur skammdegistími, því að veðráttan var hin versta, sem hugsazt gat; sífelldar hríðar dag eftir dag og viku eftir viku, svo að varla rofaði á milli bæja. Hinn djúpi, rólegi friður, sem sumir njóta þennan tíma ársins, var ekki lengur til. Það fannst séra Bjarna að minnsta kosti. Veturinn áður hafði þessi tími ver- ið honum kærkominn, róandi hvíld eftir erfiðleika sumarsins og haustsins og þá ofþenslu tauganna, sem fylgdi því öllu saman. En núna var þetta allt á annan veg. Nú var þetta tími óróleika og sálar- stríðs. Honum fannst hann vera að tapa allri fótfestu, ekki einungis í starfi sínu og kenningu, heldur einnig í einkalífi sínu. Og það versta var, að hann stóð úr- ræðalaus og máttvana og horfði á þetta allt, sem hann unni þó framar öllu öðru, berast út í hina myrku elfi tortímingar- innar. En hann vildi ekki ennþá kannast við að hann ætti sök á því, hvernig allt var að hrynja saman. Asakanir konu hans út af málum Sigríðar heitinnar vildu samt ekki láta hann í friði. En því oftar sem slíkar hugsanir sóttu á, því reiðari varð hann yfir því að geta ekki hrint þeim frá sér. Hann leit svo á, að konan hans hefði ekki neinn rétt til þess að gera sig að dómara yfir honum. Hann vildi heldur ekki kannast við, að það væri honum að kenna, hve mikið þau voru farin að fjar- lægjast hvort annað. Honum féll það að vísu illa, hvað hún var alltaf þögul og köld í viðmóti, en hann fékk sig ekki til þess að stíga fyrsta sporið til sátta. Það átti hún að gera, því að vitanlega var þetta ekki annað en venjuleg duttlunga- semi, sem kvenfólki hættir svo mikið til að þjást af. Hamfarir tíðarfarsins gerðu það að verkum, að séra Bjarni átti óhægt með að sinna sínum áhugamálum, og um messur var alls ekki að ræða. Hann varð að láta sér nægja að hugleiða sem bezt, hvernig hann gæti á sem auðveldastan hátt vænzt sigurs í baráttu sinni. Þessar hugleiðingar hans strönduðu þó allar á sama skerinu: tómlæti og skilningsleysi fólksins á allri viðleitni hans til úrbóta á því ófremdarástandi, sem var ríkjandi. Þrátt fyrir ófærð og veðurvonzku, kom Jóhannes meðhjálpari við og við og tók þá drjúgan þátt í þessum ráðagerðum hans. En það var einhvern veginn svo, að séra Bjarni var lítið farinn að gleðjast yfir komu hans. Þrátt fyrir einlægan vilja í þá átt að treysta Jóhannesi eins og sjálf- um sér, hafði hann ekki komizt hjá því að verða var við ýmislegt í fari hans, sem orsakaði það, að göt voru farin að detta á hið góða álit, sem hann hafði haft á honum. Þó að hann væri honum raunar ómissandi, var honum farin að leiðast frekjan í karlinum og sjálfselskan, sem lýsti sér á þann hátt, að hún gat tæplega verið sprottin af kristilegu hugarfari ein- göngu. Kirkjubyggingarmálið var ennþá á döf- inni, þó að peningaleysi hamlaði raunar öllum framkvæmdum. í samráði við sókn- arnefnd Brúarsóknar kom þeim saman um að halda samkomu til ágóða fyrir mál- ið. Var hún ákveðin á milli jóla og nýárs. Prestur og meðhjálpari ætluðu að flytja þar sína ræðuna hvor og leyfa síðan frjálsar umræður á eftir.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.