Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 21
N. Kv. KENNIMAÐUR 163 vitinn kom að Breiðavaði, til þess að tala við prestinn. Séra Bjarni bauð honum til stofu, allshugar feginn yfir heimsókninni. Oddvitinn hafði ekki oft komið þar, þó að hann væri hins vegar öruggur fylgis- maður hans með tilliti til ástæðna sveit- arfélagsins, eins og hann hafði komizt svo vel að orði í kosningabaráttunni. — Ég skal segja yður, prestur minn, uh, uh, að það er út af henni Guðríði í Ási, sem ég vildi tala við yður, sagði oddvitinn og var mikið niðri fyrir. Það er hálfgert vandræðamál þetta. Ég hefi verið, uh, uh, að höggva í hana undanfarið, en það er, uh, hreint ekkert lát á henni. — Svo-o, sagði séra Bjarni, án þess að skilja, hvað oddvitinn var að fara. Er það eitthvað alvarlegt með hana? — Ja, vissulega, uh. Ég skal segja yður, hvernig í þessu liggur. Hún baslar þarna sama sem ein, þó að hún hafi þennan karlgarm í vetur, til þess að hirða skepn- urnar. Ég lít nefnilega, uh, uh, svoleiðis á, að þetta sé ómögulegt fyrir hana fram- vegis. — Já, þér segið satt. Þetta er náttúr- lega ekkert líf fyrir hana. — Þetta hefi ég margsagt henni, prest- ur minn. Ég fór, uh, uh, til hennar og stakk upp á því við hana, að hún hætti að búa, því að, uh, þetta gæti aldrei bless- azt fyrir henni svona. — Það var nefni- lega maður, skal ég segja yður, búinn að biðja mig að útvega sér kotið, uh, uh. Þetta er seiglingskot, þó að það sé lítið. — Já, rétt, skaut prestur inn í. — En hún er alveg ófáanleg til þess að hætta, uh, uh. Það er ekki að spyrja að þráanum í henni, þegar hún tekur eitt- hvað í sig. Hún leyfði sér meira að segja, uh, uh, að sletta því í mig, að mér kæmi þetta ekkert við. — Svo; sagði hún það, sagði séra Bjarni, án þess að gera sér það vel ljóst ennþá, hvað það var, sem oddvitanum lá á hjarta. — Já, hún sagði það. En mér finnst nú annað. Það getur sko, uh, uh, ekki hjá því farið, að hana reki upp á sker fljót- lega, ef hún, uh, uh, heldur áfram þessu basli, og þá lendir hún, uh, með allan krakkasvarminn á sveitinni. Og með til- liti til ástæðna sveitarfélagsins get ég, uh, alls ekki látið þetta afskiptalaust. — Nei, vitanlega ekki, samsinnti prest- ur. Það er alls ekki rétt að láta það af- skiptalaust. — Ég sagði henni, uh, að það væri miklu betra fyrir hana að hætta, áður en allt færi í hundana. En það er nú öðru nær en hún vilji taka það til greina. Hún segir, að mér komi þetta ekkert við. En ég lít svo á, að mér komi þetta einmitt við, því að auðvitað lendir hún á sveit- inni með þessu áframhaldi, sagði oddviti sárgramur yfir því, að ekkjan skyldi ekki vilja taka ráð hans til greina. — Ef það er augljóst mál, sagði séra Bjarni, svo eruð þér í yðar fulla rétti. Þér getið ráðstafað þessu á þann hátt, sem þér teljið réttastan og ekkjunni er fyrir beztu. — Það er nú, uh, uh, uh, því miður dá- lítið óþægilegt viðfangs, prestur minn, sagði oddvitinn. Hún hefir nefnilega, að nafninu til, eignarrétt á kotinu, og, uh, uh, á meðan hún stendur í skilum, er þetta dálítið erfitt. Það kostar nefnilega, uh, svo árans miklar krókaleiðir. En mér datt nú sko í hug, uh, að biðja yður að fara með mér og tala við hana. Ég hefi trú á því, uh, að yður muni takast að koma fyrir hana vitinu. Það getur þá enginn. Fyrr má nú vera, ef hún stendur uppi í hárinu á yður. — Það er alveg sjálfsagt, sagði prestur. Hann varð því feginn að fá þarna tæki- færi til þess að láta kveða að sér. Svo hafði hann líka sjálfur erindi við ekkj- una. Hann var fyrir nokkru farinn að heimta til sín þau börn, sem fermast áttu 21*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.