Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Qupperneq 23

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Qupperneq 23
N. Kv. KENNIMAÐUR 165 ur, uh, uh, alveg í augum uppi, að þú endar á sveitinni með þessu áframhaldi. Hann v ar orðinn sárgramur yfir því, hvernig ekkjan snerist við þessari óeigin- gjörnu hjálparviðleitni hans. Ég segi bara, uh, að manneskjur eins og þú eiga, uh, uh, alls ekki skilið að þeim sé hjálpað eða viljað vel. — Þér verðið að hugleiða, að vegna barnanna er ekki rétt af yður að halda þessu fram með slíku ofurkappi, sagði prestur, sem líka var orðinn gramur yfir þeim þvergirðingshætti, sem ekkjan sýndi. Ekkjan sneri sér snöggt að honum. — Hafið þér ástæðu til þess að ætla, að ég reynist ekki börnunum mínum góð móðir? spurði hún svo dálítið hörkulega. — Þér megið ekki taka orð mín þannig, Guðríður, flýtti prestur sér að segja. Ég efast ekki um, að þér viljið þeim vel, eu erfiðleikarnir, sem þér hljótið að eiga við að stríða, geta gert yður það erfitt. — Þetta er bara gott verð, sem þú, uh, uh, getur fengið fyrir kotið, sagði oddvit- inn. Þú þarft ekki að hugsa, að þú fáir betra tilboð síðar, því að það hlýtur að ganga úr sér. Ekki getur þú, uh, uh, hald- ið því við svo að vel sé. — Ég er ekki viss um, að ég haldi því verr við en þú, oddviti góður, svaraði ekkjan fullum hálsi. Þú þarft ekki að halda, að ég sé svo skyni skroppin, að ég sjái ekki, hvað liggur á bak við þessa vel- vild þína í minn garð. Við höfum ekki til einskis verið nágrannar í fimmtán ár. Á meðan maðurinn minn lifði, gerðir þú ítrekaðar tilraunir til þess að hafa hann burtu af jörðinni, til þess að geta haft hér beitarhús, vegna þess að hér er betri beit en hjá þér, þó að jarðirnar liggi saman. Þó að þú þykist vera umboðsmaður fyrir annan, sannar það ekkert. Sannleikurinn er sá, að þú ætlar að sölsa hana undir þig til þess að .geta lagt hana í eiði og nytjað eftir geðþótta. En á meðan ég er nokkurs megnug, skal þér ekki takast það. Hvort sem þetta hafði við rök að styðj- ast eða ekki, er ekki gott að segja, en nokkuð var, að oddvitinn stökk upp ösku- reiður: — Jæja, þú mátt þá, uh, uh, uh, svelta í hel með alla þína krakkaorma. Ekki skal ég, uh, uh, gera fleiri tilraunir til þess að koma fyrir þig vitinu. En skyldu ekki, uh, uh, verða minni í þér merkilegheitin, þegar þú þarft að fara að leita á náðir hreppsins. Ekkjan svaraði þessu engu. Séra Bjarni hélt dálitla ræðu, til þess, ef unnt væri, að milda hið kuldalega andrúmsloft, sem virtist ríkja í baðstofunni. Oddvitinn gerði sig líklegan til ferðar. Þá mundi prestur allt í einu eftir því, að hann átti dálítið ótalað við ekkjuna. — Heyrið þér, Guðríður. Ég vildi minn- ast á drenginn við yður. Hann hefir aldur til þess að fermast í vor. Mér þætti vænt um, ef hann kæmi til mín framvegis á hverjum fimmtudegi ásamt hinum börn- unum. — Drengurinn minn verður ekki fermd- ur, svaraði ekkjan stuttlega. Þér þurfið ekki að gera yður neinar áhyggjur út af honum. — Ekki fermdur? endurtók prestur og hélt, að sér hefði misheyrzt. — Já, ég sagði, að hann yrði ekki fermdur, sagði ekkjan. — Það getur ekki verið alvara yðar, sagði prestur og bar ótt á. Öll börn verð- ur að ferma. — Getið þér bent mér á, hvar þau lög standa, sem mæla svo fyrir, að ferma skuli börn? mælti ekkjan. — Ja, vitanlega er enginn lagastafur þar um, varð séra Bjarni að viðurkenna. En frá trúarlegu sjónarmiði er það sjálf- sögð skylda.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.