Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 25

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 25
N. Kv. Halldór Stefánsson: Saga Möðrudals á Efra-Fjalll. (Framhald). Möðrudalsb'rœður. Þeir bræður, synir Jóns og Aðalbjarg- ar, ólust upp heima þar í Möðrudal allir saman fram yfir tvítugsaldur. Þeim hefir verið svo lýst, bræðrum, að allir hafi þeir verið með stærstu mönnum á vöxt og vel á sig komnir, fríðir sýnum, rammir að afli og vel búnir að öllu atgjörvi, líkamlegu sem andlegu, hæglátir og prúðir í fram- göngu og valmenni. Þó báru þeir af um afl og vöxt Metúsalem og Jón, einkum Metúsalem; er svo sagt, að aldrei vissu menn til, að honum yrði aflfátt. Um afl þeirra Jóns og Metúsalems er sagt þetta til dæmis: Á Eirksstöðum í Jökuldal er blágrýtissteinn einn, bútur af stuðlabergssúlu, aðeins tæp 200 kg. á þyngd. Var hann upphaflega notaður fyr- ir steðjaþró, en á seinni tíð til aflrauna. Hafa það verið taldir vel knáir menn, sem lyft hafa steininum úr grasi. Þenna stein lét Jón léttilega upp á smiðjuafl, en Metúsalem lyfti honum bringuhátt og rétti hann frá sér með stífum armleggj- um. Yngri bræðurnir, Metúsalem og Sigurð- ur, gerðust báðir bændur í Möðrudal eft- ir foreldra sína, en eldri bræðurnir, Árni og Jón, höfðu þá staðfest ráð sitt utan æskuheimilis síns. Verður hér fyrst sagt nokkuð frá þeim. Árni Jónsson (f. 1811) réðist vorið 1834, 23 ára að aldri, til búsforráða með ungri ekkju, Guðrúnu Eiríksdóttur, búandi á Aðalbóli í Hrafnkelsdal, og kvæntist henni um haustið það sama ár (16. sept.). Guðrún var kvenkostur góður, fað- ir hennar var Eiríkur Sigurðsson bóndi á Aðalbóli. Var hann kunnur á sinni tíð fyr- ir eftirleitarferðir á Vesturöræfum með nágranna sínum, Jóni hinum fríska á Vaðbrekku Andréssyni, og talið að Eirík- ur hefði eitt sinn komizt í hendur úti- legumanna, en Jón sloppið vegna fráleiks síns og fengið Eirík lausan með því að hóta að safna liði í byggðum og fara að útilegumönnunum. — Eftir 22 ára sam- búð þeirra Árna og Guðrúnar, haustið 1856 (27. sept.) andaðist Guðrún. Fimm árum síðar, haustið 1861 (16. sept), kvæntist Árni í annað sinn Hermanníu Jónsdóttur frá Eyvindarstöðum í Vopna- firði. Bjuggu þau á Aðalbóli þar til Árni dó 26. maí 1867, rúmlega hálfsextugur að aldri. Árni var smiður góður, þrifnaðarbóndi og mætismaður. Með konum sínum báðum átti Árni 5 börn. Með fyrri konunni átti hann tvo sonu, Metúsalem (f. 1835) og Friðrik (f. 1850). Þeir dóu báðir á undan föður sín- um og báðir sama árið (1862). Með síðari konunni átti Árni einn son, Sigurð Tryggva (f. 1865), og tvær dætur, Jónínu Aðalbjörgu (f. 1862) og Ástríði (f. 1864) Móðir þeirra giftist aftur Jóni Einarssyni, Jónssonar vefara, bjuggu þau á Aðalbóli til vors 1875, er þau urðu, sem fleiri, að hörfa undan öskufallinu. Fluttust þau að

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.