Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 30

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 30
172 SAGA MÖÐRUDALS Á EFRA-FJALLI N. Kv. Jóni Metúsalemssyni er svo lýst, að hann hafi verið hár maður á vöxt og vel á sig kominn, fríður sýnum, sviphreinn, stillilegur og prúður í framgöngu. 2. Ragnhildur Björg Metusalemsdóttir (f. 7/9 1844) fór frá Möðrudal um líkt leyti sem Jón bróðir hennar. Hún fór til Árna móðurbróður síns að Árnanesi í Kelduhverfi. Þaðan fluttist hún til Akur- eyrar til Jóns Kr. Stefánssonar timbur- meistara og dvaldist þar í 5 ár. Var hún þar samtímis Jóni bróður sínum tvö fyrstu árin. Móðir þeirra var þá einnig komin til Akureyrar. Sama árið, sem Kristbjörg fluttist að Víðidal til Jóns son- ar síns, fluttist Ragnhildur að Laufási til séra Björns Halldórssonar frænda síns og var hjá honum í þrjú ár. Vorið 1868 fór hún til móður sinnar, er þá var gift séra Pétri Jónssyni á Valþjófsstað. Rúmum þrem árum síðar, 29. ágúst 1871, giftist hún Stefáni syni séra Péturs af fyrra hjónabandi. Hann hafði þá um vorið tek- ið stúdentspróf, og varð tveim árum síð- ar, að loknu guðfræðiprófi, prestur að Desjarmýri, og fékk síðar (1883) Hjalta- stað. Þau eignuðust 12 börn, sem upp komust.1) Séra Stefán dó 12. ágúst 1887. U 1. Þórdís (f. 27/10 1869) kennslukona, g. Davíð Sigurðssyni trésmíðameistara á Akureyri. 2. Pétur (f. 16/12 1871, d. 3/5 1910) síðast bóndi í Bót í Hróarstungu. 3. Jón (f. 27/4 1873, d. 29/10 1923), sjá æfi- minning í Óðni 1934. 4. Anna (f. 25/10 1874) g. séra Þorvarði Bryn- jólfssyni á Stað í Súgandafirði. 5. Björg (f. 29/3 1875) g. Jóni Arngrímssyni Johnson bónda í Minnesota U. S. A. 6. Halldór (f. 26/5 1877) síðast forstjóri Bruna- bótafélags Islands, alþm. N.-M. 1924—1934. 7. Þórunn (f. 18/3 1879) saumakona í Rvík, óg. 8. Björn (f. 9/5 1880 d. 9/9. 1936) alþm. S.-M. 1916—1919. 9. Guðmundur (f. 19/9 1881) alþýðuskólakenn- ari í Minnesota U. S. A. 10. Metúsalem (f. 1882) skólastjóri á Eiðum, síð- ar búnaðarmálastjóri. Vorið eftir andlát hans fluttist Ragnhild- ur, ásamt móður sinni, að Geitagerði í Fljótsdal, sem segir í þætti Kristbjargar, með meira hluta barna sinna, en hin fóru í fóstur til frænda og vina. Þegar þær mæðgur brugðu búi í Geitagerði, voru börn Ragnhildar enn svo ung, að ekkert þeirra hafði staðfest ráð sitt; fóru þau þá viðs vegar, ýmist til náms eða í vistir og sum til Vesturheims. Dvaldist Ragnhild- ur þá nokkur ár hjá Aðalbjörgu systur sinni, er þá var gift síðari manni sínum, Jóni Andréssyni Kjerúlf bónda á Melum, sem síðar getur um í þætti Aðalbjargar. Tvo síðustu áratugi æfinnar var Ragn- hildur hjá elztu dóttur sinni, Þórdísi, og manni hennar Davíð Sigurðssyni timbur- meistara á Akureyri. Þar dó hún 6. jan. 1923. Ragnhildur var fríðleikskona og frábær að atgjörvi og mannkostum. 3. Aðalbjörg Guðrún Metúsalemsdóttir (f. 1846) var samfleytt í Möðrudal, þang- að til Jón bróðir hennar fór að búa i Víðidal; fór hún þangað með honum. Tveim árum síðar fór hún að Eiríksstöð- um og giftist þá um haustið (8/11 1867) bræðrungi sínum, Jóni (yngra) Jónssyni. Sambúð þeirra varð ekki löng, því að Jón dó 21. sept. 1873. Börn áttu þau tvö (Jón- ínu Aðalbjörgu og Gunnlaug), en þau dóu bæði á æskualdri. Aðalbjörg var stutt á Eiríksstöðum eft- ir lát Jóns. Vorið 1875 fór hún aftur að Víðidal, en ári seinna að Valþjófsstað til móður sinnar og stjúpa, séra Péturs Jóns- sonar. Tveim árum síðar gekk hún að eiga Jón Andrésson Kjerúlf, bónda á Melum. Synir þeirra eru Metúsalem 11. Þorsteinn (Sigurður) (f. 30/10 1883) kennari á Hvanneyri 1908—1909, síðar bóndi á Þver- hamri í Breiðdal o. v. 12. (Jónína) Aðalbjörg (f. 11/9 1886) g. Guð- mundi Þorbjarnarsyni, múrarameistara á Seyð- isfirði.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.