Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 35

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 35
N. KV. DÆTUR FRUMSKÓGARINS 177 iegi kvíði þinn í dag gerir mig óttasleg- inn. Ég heyri heldur ekki neitt1'. „Ég ekki heldur“, sagði lagsmærin. „Ég get fullvissað ykkur um, að mér misheyrist ekki“, svaraði Dolores með hálfkæfðri rödd, „ég heyrði greinilega hátt og sársaukafullt hljóð, eins og frá manni, sem staddur er í ýtrustu neyð. Mér heyröist það vera faðir minn“. „Hið æsta ímyndunarafl yðar villir yð- ur sýn“, mælti Banderas. „Það er hugsanlegt“, svaraði Dolores, „en ég verð ekki í rónni, meðan faðir minn nýtur engrar verndar. Við skulum senda þrjá vopnaða þjóna á eftir honum, Jaime, og láta einn þeirra snúa við aftur hingað, þegar þeir hafa fundið hann, svo að við vitum, hvernig honum líður“. Ótti systurinnar hafði haft sín áhrif á bróðurinn, svo að hann var tillögu henn- ar samþykkur. Hershöfðinginn dró enga dul á, að hann var mótfallinn þessari ráðagerð, en sá sér hins vegar ekki fært að ráða þar nokkru um. Andartaki síðar riðu þrír velvopnaðir menn út um eitt hliðið, og stefndu inn í frumskóginn. Þeir, sem eftir voru, fóru til herbergja sinna. Hershöfðinginn gekk þó ekki strax til hvílu, heldur settist við skotauga, sem var á þeim vegg svefnherbergisins, sem vissi út að skóginum, og rýndi með at- ■hygli inn til skógarins, sem kolsvartur iskar vel af við tunglskinsbleika maísakr- ana í nánd við búgarðinn. Eftir á að gizka klukkustundar bið, sá- ust þrjú ljósleiftur úti í skógarjaðrinum, sem hurfu 'jafnskjótt aftur. Við þessa sjón leið ánægjubros yfir andlit hershöfðingj- ans. „Nú get ég gengið rólegur til hvílu“, -tautaði hann, „ég hefi lokið dagsverki ímínu“.' "i ' -íU ' : ■■ Eins og áður er sagt yfirgáfu þeir Zurdo, Gomez og Santuscho hacienduna eftir bendingu frá hershöfðingjanum. Það þurfti ekki að vekja neina sérstaka grun- semd hjá neinum, því að bjálkakofar þeirra stóðu úti í skóginum. Þegar ekki var lengur hægt að sjá til þeirra frá haciendunni, beygðu þeir út af veginum, sem lá heim til þeirra, en lædd- ust hljóðlega í þá átt, sem Don Rodriguez hafði haldið í. Frumskógurinn var ekki mjög þéttur né ógreiðfær í nágrenni haciendunnar, vegna þess að þjónustu- fólkið hafði víða höggvið þar götuslóða og rutt burtu þyrnigerðum og vafningsviðj- um. Skógurinn var samt sem áður all ógreiður yfirferðar. Raklendur jarðvegur- inn var frjósamari en svo að mannshönd- in gæti þar nokkuð við ráðið, og hinn blaðstóri vafningsviður, óx stöðugt . og dafnaði og torveldaði hverja leið sem um skóginn lá. Inni í skuggalegum fylgsnum frum- skógarins gátu heilir flokkar mannua leg- ið í leyni og ráðizt á þá, er um veginn fóru. Don Rodriguez fann aldrei til ótta á þessum slóðum; stafaði það af því fyrst og fremst. að öll þau ár, sem hann hafði búið á haciendunni, hafði jafnan ríkt þar friður og ró. Þetta kvöld hélt hann einnig óttalaus leiðar sinnar inn í skóginn. Tunglskinið sitraði inn á milli trjánna, en lengra inni grúfði niðamyrkur. Don Rodriguez þekkti veginn til hlítar og reið áfram í þungum þönkum. Veitti hann því ekki neina sér- staka athygli lágu þruski, er hann heyrði, þegar hann var kominn nokkur hundruð skref inn í skógarþykknið. En þegar hann heyrði það aftur nokkru síðar, stöðvaði hann hestinn og hlustaði. „Skyldi einhver tígrisdýrsungi hafa vogað sér svo nærri búgarðinum“, tautaði hann. 23

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.