Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 36

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 36
178 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv. Ósjálfrátt greip hann til hnakktöskunn- ar og ætlaSi að ná þar í skammbyssu sína, en það var um seinan, því í sömu andrá var vafningsviðnum bægt til hliðar og dökkklæddur maður ruddist fram á veg- inn. Áður en Don Rodriguez gat snúið sér við, hafði hinn ókunni maður lagt blik- andi hníf í bak honum. Hann rak upp hræðilegt kvalaóp ogvar samstundis örendur. Morðinginn var eng- inn annar e.n Santuscho. Hann þurfti ekki að hafa fyrir því að taka hinn myrta af baki, því að hann hné magnlaus til jarðar við áverkann, en hesturinn fæld- ist um leið og hentist inn í frumskóginn. Tveir menn aðrir komu nú í ljós. Var annar þeirra með poka meðferðis, en hinn bar skriðbyttu, sem hann lýsti með framan í náföla ásjónu hins dána manns. ^Steindauður1', mælti hann — það var Zurdo — „og það svo skjótlega, að andlit hans hefir ekki haft tíma til að afmynd- ast. Þú ert enginn klaufi, Santuscho!“ „Þegar hvítur maður á í hlut, þá veit ég engin dæmi þess, að hnífur Apacha- indíánans missi marks“, svaraði San- tuscho. Mexíkanarnir, Zurdo og Gomez litu tortryggnislega til Indíánans. En hann hafði slíðrað hníf sinn og stóð með kross- lagða arma á brjósti og beið þess, sem verða vildi. Gomez breiddi nú pokann á jörðina, en Zurdo tók lítið glas upp úr vasa sínum og hellti innihaldi þess í andlit líksins. í glasinu var sýra er samstundis brenndi svo hörundið að ásjóna líksins var gjör- samlega óþekkjanleg. „Ég vona að hershöfðinginn verði nú ánægður með okkur“, mælti Zurdo. Þeir hjálpuðust allir þrír við að koma líkinu í pokann og báru hann síðan á milli sín lengra inn í skóginn, í þá átt, þar sem hann var enn óruddur og veglaus. Einn þeirra fór á undan og ruddi þeim braut, sem pokann báru. Að lokum komu þeir í rjóður nokkurt, sem þó var niðadimmt, því að risavaxið sumaktré, sem stóð í því miðju, skyggði með hinni blaðríku krónu sinni gjörsam- lega yfir það, svo enginn tunglskinsglæta komst þar að. Sumaktréð var holt og inn í það tróðu þeir félagar hinum mis- þyrmda líkama plantekrueigandans. „Hér getur hinn mikilláti Don Rodrigu- ez sofið jafnvel og á æðardúnssæng“, sagði Zurdo og glotti djöfullega. „Hvenær á hann að skipta um dvalar- stað?“ spurði Gomez. „Annað kvöld, þegar dimmt er orðið, flytjum við Santuscho hann í Kirkjuhell- inn. „Þið bíðið okkar þar, ásamt sex Apacha- indíánunum, sem Santuscho hefir boðið að vera þar“. „Já, hershöfðinginn ætlar sjálfur að koma í Gimsteinadalinn. „Ætlið þið í raun og veru að vísa hon- um leiðina þangað?“ „Já, en hamingjan hjálpi honum, ef hann gerir minnstu tilraun til að hrifsa til sín þá fjársjóðu, sem þar eru. Þeir til- heyra mér og Santuscho, því við fundum dalinn. „í rauninni tilheyrir hann plantekrueig- andanum eða börnum hans, því hann er í þeirra landi“. „Hver gaf honum réttinn til þessa lands? Hver gaf stjórninni rétt til að selja þetta land? Enginn! Og ekki vissi Don Rodriguez um þennan dal, þegar hann flutti hingað“. „Þú hefir rétt fyrir þér“, svaraði Gom- ez hugsandi, „en fæ ég ekki að vera hlut- takandi í fundi þínum?“ „Jú, vissulpga“, mælti Zurdo. „Við þörfnumst hvor annars og skulum halda vináttu okkar áfram. Og auk þess yrði

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.