Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 37

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 37
N. Kv. DÆTUR FRUMSKÓGARINS 179 nóg eftir handa mér, þótt ég gæfi öðrum þrjá fjórðu hluta af fjársjóðnum“. „Við skulum nú halda heimleiðis“, mælti Gomez. „Máske sendir fjandinn einhvern hirðingja til heimila vorra og þá gæti fjarvera okkar vakið tortryggni“, „Það er rétt“, svaraði Zurdo, „Fyrst ætla ég að gefa hershöfðingjan- um merki um að allt hafi gengið að ósk- um“, sagði Gomez. Þess næst yfirgáfu þeir rjóðrið. Á að gizka tíu mínútum síðar brakaði lágt í nálægum þyrnirunna og inn í rjóðr- ið kom stór hundur af Nýfundnalands- kyni. Hundurinn snuðraði nokkra stund fram og aftur um rjóðrið og rak svo upp lágt, sárt ýlfur. Samstundis kom hár og grannvaxinn maður út úr þykkninu. „Komdu, Kosta“, sagði hann við hund- inn, „þú ert alltaf svo vitur. Komdu nú!“ Hundurinn flaðraði upp um manninn og urraði ánægjulega. „Segðu mér, Kosta, var Indíáni meðal þeirra?“ Hundurinn gellti lágt en reiðilega. „Þetta grunaði mig. En bíðið drengir góðir! Dagur hefndarinnar kemur fyrr en varir. Ég hefi nógu lengi beðið færis“. Hann kveikti á kyndli, sem hann bar með sér og lýsti inn í trjábolinn. Síðan skar hann á snærið sem bundið var fyrir pokann, svo andlit Don Rodriguez kom í ljós. Hann hörfaði skelfdur til baka. „Þetta er hræðilegt“, mælti hann, „all- ir andlitsdrættir eru óþekkjanlegir. Þetta hafa hvítir menn gjört, Indíánar þekkja engar slíkar sýrur. Ég verð að komast fyrir hver hinn myrti er. Bíðum við“, sagði hann og greip snúru, sem hékk um háls hins dauða manns, „hér fæ ég máske ráðninguna“. Hann dró snúruna til sín og kom þá gullnisti í ljós, sem við hana hékk. Hann tók það af og batt síðan fyrir pokann. „Dásamlegt!11 mælti hann er hann hafði opnað nistið. „Dauðinn getur varla orðið beizkur, þegar slík augu gráta yfir manni!“ Það var mynd af Maríu, konu Don Rodriguez, sem hann hélt á í hendinni. Hann reyndi einnig að opna nistið hinum megin, en þegar það tókst ekki, stakk hann því í vasa sinn. „Áfram, Kosta“, sagði hann við hund- inn. „Við hljótum að vera komnir í nánd við einhverja mannabústaði. Þú verður að vísa veginn til öruggs náttstaðar“. Hundurinn hljóp þefandi nokkra stund um rjóðrið, því næst hélt hann af stað. Eigandi hans fylgdi honum eftir, og innan skamms voru þeir komnir í þann hluta frumskógarins, sem lá í kringum bjálka- hús þjónustufólksins. En þeir héldu áfram, unz þeir komu inn á hið skóglausa svæði kringum hacienduna. Tunglsljósið skein nú beint framan í hinn ókunna mann. Hann var hár og grannur, bjúgnefjaður og kinnfiskasoginn. Ennið var lágt en bratt og augun stór og bláleit, en yfir þau slúttu loðnar og næst- um því hvítar augabrýr. Klæðnaður hans var harla kynlegur. Á fótunum hafði hann indíánaskó, svokallaðar mokkasínur. Hann var í úlpu mikilli úr gráu efni og með barðastóran hatt á höfði. Á bakinu hafði hann hjartarskinnklæddan kistil og staf mikinn í hendi. Hann líktist helzt farandkvekara, sem prangar með alls konar glysvarning. En svipurinn, sem var yfirlætislaus, næstum auðmjúkur, var í fullkomnu ósamræmi við annað útlit hans. „Þetta er reisulegur búgarður“, tautaði kvekarinn. „Ég er illa svikinn, ef þetta er ekki Hacienda del Rodriguez, búgarð- ur hins ríka, einræna plantekrueiganda, sem ég hefi svo oft heyrt talað um“. 23*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.