Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Page 40

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Page 40
182 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv- „Já“, svaraði Don Jaime, „faðir minn hefir oft minnst á hana, en hann hefir al- drei séð hana sjálfur. Indíánarnir hræð- ast hana meira en nokkuð annað. Sú saga gengur, að hún drepi ávallt sjö í einu, ef hún á þess nokkurn kost. Og þrjár stjörn- ur skornar í enni hinna drepnu er tákn þess, hver vegið hefir“. „Ekki þrjár stjörnur, heldur þrír kross- ar“, leiðrétti Ruben. „Þetta er hræðilegt!“ stundi Donna Dolores náföl. „ í guðs friði, Sennora“, sagði Ruben. „Ég hlýt að halda för minni áfram. Minn- ist orða minna“. Hann sneri sér við og ætlaði að fara, en Banderas stöðvaði hann og mælti: „Nei, bróðir! Þér sleppið ekki. Sá, sem hefir lagt hendur á mig, skal gjalda þess sárlega“. Úrasalinn leit undrandi á herforingj- ann. „Ég held að ég hafi ekki misskilið þig, heldur þú mig“. „Við fáum senn úr því skorið“, svaraði hershöfðinginn, „en yður verður nú varp- að í fangelsi, eins og hverjum þeim, sem hefir gerzt svo ósvífinn að leggja hend- ur á fyrrverandi ríkisstjóra í Sonora“. Hann gaf nokkrum þjóanna bendingu um að taka kvekarann höndum. Þeir þorðu ekki að mótmæla, þótt þeir í hjört- um sínum væru því mótfallnir, að kvek- aranum væri gert nokkurt mein, því að hann var vel þokkaður og talinn mein- leysingi í Vesturfylkjunum. Kvekarinn gerði sig líklegan tii að sýna mótspyrnu, en hætti við það og sagði: „Ég skal fylgja ykkur eftir af frjálsum vilja,en sjálfs yðar vegna vara ég yður við að snerta mig. Förunautur minn þarna mun rífa hvern þann í tætlur, sem snertir við mér, þótt ekki sé nema andartak". Viðvörunin var ekki ástæðulaus, því að hundurinn stóð við hlið húsbónda síns og lét ófriðlega. Þeir hættu því við að leggja hendur á Ruben, en gengu á undan honum í áttina til fangelsisdyranna. „Hversvegna takið þið þennan mann höndum?“ spurði Don Jaime og gekk í veg fyrir þá. „Ég hefi skipað þannig fyrir“, svaraði Banderas kuldalega, „Hér hafa engir leyfi til að gefa fyrir- skipanir aðrir en faðir minn og ég“, svar- aði Don Jaime ákveðinn. „Ungi maður“, svaraði hershöfðinginnr „réttur föður yðar til að gefa fyrirskipanir hér er háður ýmsurp skilyrðum, sem hafa sérstaka þýðingu, ef ófriður er yfirvof- andi, og ég sem hershöfðingi hefi æðsta vald til að ógilda öll fyrirmæli, sem hann eða þér kunnið að gefa, ef mér finnst nauðsyn bera til“. „Ég læt mig engu skipta lagaflækjur yðar“, svaraði Don Jaime, „og að þessu sinni finnast mér ástæður yðar til að hefta för þessa manns, svo auðvirðilegar, að ég mun aldrei gefa samþykki mitt til þess“. í sömu svipan kom einn af þjónunum inn í garðinn og sagðist hafa fundið hest Don Rodriguez mannlausan skammt frá hacíendunni. Hershöfðinginn sneri sér að Don Jaime og mælti: „Þér eruð ungur og óreyndur, þess vegna mun ég fyrirgefá yður. Þér megið ekki halda, að ég hafi látið fangelsa þenn- an prangara sjálfs mín vegna. Síðan þjónninn, er sendur var á eftir föður yð- ar, kom til baka eftir árangurslausa leit, hefi ég ekki eitt augnablik verð í vafa um að eitthvert óhapp hafi hent föður yð- ar. Þessi umferðakvekari hefir vakið grunsemd mína, og þar sem hann kom hingað um miðja nótt, fannst mér ekki ó- hugsandi, að hann gæti gefið einhverjar upplýsingar um hvarf föður yðar“.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.