Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 42
184 BÓKMENNTIR N. Kv„ megnugur, því að þarna er lýst ýmsum af mestum sigrum hans. Sigrum, sem erfitt er að trúa að unnt verði að beita öðru vísi en mannkyninu til blessunar, til að lina þjáningar særðra og sjúkra. Við lestur bóka sem þessarar, hlýtur sú spurning að vakna, hvort ekki sé unnt að framreiða fleira af vísindum nútímans á jafn aðgengilegan hátt, og ósjálfrátt verð- ur huganum hvarflað til margra kennslu- bóka, sem eru allt annað en vel lagaðar, til þess að skapa áhuga um efni þeirra. En því miður er víst fáum mönnum gef- inn sá hæfileiki að kunna að segja frá eins og þessi brezki læknir. Islenzkum bókmenntum er fengur í bók þessari, því að þær eru harðla snauð- ar að alþýðlegum bókum um vísindi og menningu nútímans, og þó einkum bók- um, sem jafn fullkomlega sameina fróð- leik og skemmtun. Þýðandinn, dr. G. Claessen, hefir leyst hið erfiða starf sitt vel af hendi, enda er hann vanur rithöf- undur og íslenzkum lesendum að góðu kunnur fyrir fjölmargar ritgerðir um læknis- og heilsufræðileg efni. Eiga bæði hann og útgefandinn þakkir skildar fyrir bókina. íslenzkir sagnaþættir og þjóðsögur II. Safnað hefir Guðni Jónsson. Rvík 1941. Útg. ísafoldarprentsmiðja. Þegar Guðni Jónsson gaf út fyrsta hefti sagna sinna í fyrra, var það sýnt, að hann kunni vel með sögur að fara, svo að skemmtan og fróðleikur væri í. Hefti það, ■ er nú birtist, er hinu fyrra líkt, þar eru söguþættir um sérkennilega menn, þjóð- sagnir og fyrirburðasagnir. Ýmsir eru þeir menn, sem telja það miður farið að láta sagnir af atburðum, sem borið hafa fyrir núlifandi menn eða nýdána fylgjast með hinum eiginlegu þjóðsögnum, er borist hafa manna á milli og alþýðan skáldað í eyðurnar, til að gera allt sögu- legra. En í þessu safni og fleirum hinna. nýju þjóðsagnasafna gætir þessa nokkuð. En þess er að gæta, að oft er erfitt að draga mörkin á milli sagnanna, þegar skýrt er frá sams konar atburðum, þótt endurminningin um suma þeirra hafi geymst í nokkra mannsaldra en hina hafi borið fyrir frásagnarmanninn sjálfan. I þessu safni Guðna er allmargt nýsagna, eru þar skyggnisögur um huldufólk og dánarsvipi, draumar og dularfull há- reysti. Þá er og lýst einkennilegri villu í grennd við Eyrarbakka. Margt af sögum þessum er hið merkilegasta. Sagan um Leirubakkadrauginn sýnir bezt, hversu langlífir hinir eiginlegu draugar hafa reynzt. Eftir sögunni er hann vakinn upp 1718, en hefir stöðugt látið á sér bæra fram á daga núlifandi manna. Má segja um þá sögu, eins og raunar fleiri í safni Guðna, að þær brúi djúpið milli gömlu þjóðsagnanna og nútímans. Þættirnir bregða upp myndum ein- kennilegra manna og aldarfars liðins tíma, þótt efnið sé oft ekki mikið. Frásögn á sögunum er öll góð og málið víða sér- kennilegt og allmargt orða og orðatil- tækja, sem nú eru að gerast fátíð. Er safn þetta góð viðbót við þau söfn íslenzkra fræða, sem út hafa komið á síðustu árum. Grima 16. Ritstjórar: Jónas Rafnar og Þorsteinn M. Jónsson. Akureyri 1941. Útg. Þorsteinn M. Jónsson. Það er næstum því óþarfi að kynna les- endum N. Kv. þótt nýtt hefti komi út af Grímu. Hún er fyrir löngu svo fastmótuð að efni og vinsældir hennar rótgrónar, að öllum er kunnugt, að hún hefir ætíð eitt- ■ hvað gott að færa. Það mundi verða sjón- arsviftir öllum unnendum íslenzkra fræða, ef Gríma legði niður sína árlegu heimsókn. Hefti það er hér um ræðir er hið skemmtilegasta, enda þótt oft hafi verið

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.