Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 43

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 43
:n. Kv. BÓKMENNTIR 185 um veigameiri sögur að ræða í fyrri heft- um. Þannig er þáttur Oscars Clausens um Sandholtsfeðga hinn fróðlegasti og bráð- skemmtilegur. Gaman er og að sögunum um Ábæjarskottu og huldufólkssögunum, sem eru í hinum gamla og góða þjóðsagn- arstíl og sýna, að enn lifir huldufólkið í bezta gengi. Þá flytur Gríma hrakninga- og mannskaðasagnir. Líkar sögur hafa birtst í henni áður, og eru þær hinar fróðlegustu, og þarft að þeim sé til skila haldið, sem sýnishornum þeirrar lífsbar- áttu, sem háð hefir verið öldum saman hér á landi við hamröm náttúruöfl. í stuttu máli sagt, Gríma skipar enn sem fyrri einn fremsta sessinn meðal ís- lenzkra þjóðfræðasafna. Margit Ravti: Birgitta á Borgum. Helgi Valtýsson íslenzkaði. Akureyri 1941. Útg. Þorsteinn M. Jónsson. Það er eiginlega fátt að segja um þessa nýju bók Margit Ravn. Hún er gædd sömu kostum og göllum og hinar fyrri bækur þessa höfundar þær, er út hafa komið á íslenzku, og eignast vafalaust sama vinahóp og þær. Því að ekki verður því neitað, að bækur Margit Ravn eru vinsælar, enda er margt í þeim, sem gerir þær aðlaðandi fyrir tiltekinn lesendahóp. Efnið í Birgittu á Borgum er líkt og í öðrum sögum höfundar, æfintýri, ástir og árekstrar ungra stúlkna, ekkert óvana- legra en gengur og gerist. Undiraldan er hér hin sama og áður að þeim farnist bezt, sem tryggastir eru og fastheldnastir við fornar dyggðir. Höfundurinn er and- stæður hinu innantóma, rótlausa lífi, sem mikill þorri æskulýðs nútímans lifir, og vill áreiðanlega láta bækur sínar vinna gegn því. Það er því óhætt um það, að bækur hennar spilla engum, þótt þær á hinn bóginn flytji hvorki djúpsetta lær- dóma né siðapredikanir. Málið á bókinni er engan veginn gott. Allmikill hluti hennar er að vísu samtöl fólks, sem í frumriti sögunnar er látið tala óvandað götumál, og því ekki hægt um vik að breyta því svo mjög. En málið er heldur ekki gott þótt ekki sé um sam- töl að ræða, og hlýtur það að verða sök þýðandans. Götumál er alltaf slæmt og ekki sízt nú, er varhugavert að láta það sjást á prenti, þegar einmitt ritmálið eitt verður að hamla upp í móti þeim spill- ingaröflum, er sækja að íslenzkri tungu með meira afli en nokkru sinni fyrr. Elinborg Lárusdóttir: Frá liðnum ár- um. Endurminningar Jóns Eiríksson- ar frá Högnastöðum. Akureyri 1941. Útg. Þorsteinn M. Jónsson. Það virðist ætla að gerast tízka, að skáldsagnahöfundar vorir taki að skrifa æfisögur eftir frásögn söguhetjanna- Hagalín hefir þegar skrifað tvær slíkar sögur við góðan orðstír, og hér kemur Elinborg Lárusdóttir með þriðju söguna, og hana ekki ómerkasta. Hefir hún þar skrásett endurminningar sunnlenzks al- þýðumanns, Jóns Eiríkssonar frá Högna- stöðum. Æfi hans hefir að vísu ekki verið frábrugðin æfi fjölmargra samtíðarmanna hans- Hann elzt upp við þröngan kost á efnalitlu sveitaheimili, fer síðan til sjó- róðra jafnskjótt og aldur leyfir, er í vinnumensku, fer norður í land í kaupa- vinnu á sumrum en stundar sjó á vertíð- um- Fulltíða maður setzt hann að í Reykjavík og berst þar í bökkum með alla afkomu, en er nú maður háaldraður nær sjónlaus, þegar hann rifjar upp sögu sína, sem skáldkonan hefir síðan bókfest. Enda þótt söguefnið sé þannig ekkert óvanalegt, þá hlýtur lesandinn samt að fylgja söguhetjunni með athygli. Frú El- inborg hefir sýnt það áður í sögum sín- um, að hún er gædd góðri frásagnargáfu, og kemur það skýrt í ljós í þessari sögu. Frásögnin er öll lifandi og blæs lífi í at- 24

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.