Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 45

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 45
3T. Kv. BÓKMENNTIR 187 farnast vel, þá verðið þið jafnan sólar- megin í lífinu, gæfumenn og góðir menn. Formálabók eftir Árna Tryggvason og Bjarna Bjarnason. Reykjavík 1941. Útgefandi ísafoldarprent- smiðja h.f. Árið 1911 kom út lögfræðileg formála- bók eftir Einar Arnórsson. Mun sú bók nú uppseld, enda orðin að ýmsu úrelt, þar sem miklar breytingar hafa orðið í lög- gjöf landsins síðan hún kom út. Mér sýn- ist að svo margt sé tekið til greina í þess- ari nýju formálabók, að fátt muni það vera í almennu viðskiptalífi manna, sem ekki er hægt að fá þar leiðbeiningu um. Hún flytur margs konar sýnishorn af samningum, skuldabréfum, kærum og alls konar skjölum, er menn þurfa oft og tíðum að semja. Hún getur sparað al- þýðumönnum að leita til lögfræðinga í mörgum tilfellum, þar sem þeir geta bjargað sér sjálfir, ef þeir hafa góða for- málabók við hendina. Bók þessi er því nauðsynleg og handhæg hverjum manni. lslenzk-dönsk orðabók. Samið hefir Jakob Jóh. Smári. Reykjavík. Bóka- verzlun Guðmundar Gamalíelssonar. MCMXLÍ. Bók þessi er 240 bls. að stærð í allstóru átta blaða broti. Það var mikil nauðsyn að fá handhæga ísl.-danska orðabók. Hin mikla orðabók Sigfúsar Blöndals er of stór til þess að verða notuð af skólafólki almennt, eða öðrum þeim, sem nema dönsku. Þessi bók er mjög handhæg til notkunar við stílagerðir og bréfaskriftir á dönsku. En hún er líka nauðsynleg bók fyrir þá Dani, er nema vilja íslenzku. Hugrún: Mánaskin. Ljóðmæli. ísa- foldarprentsmiðja h.f. Rvík MCMXI. Þetta er lagleg bók að ytra útliti, gefin út á góðan pappír og bundin í snoturt band- En sem sýnishorn af skáldskap og rími höfundar tek eg þessa vísu: »Svarfaðardalur sveitin mín, síblessuð veri minning þín; man eg þig, mæta móðurgrund, man eg þig alla lífsins stund«. F. H. Berg. A Vesturvegum. Blað úr óprentuðu riti, er Iýsir Vesturheimsferð fyrir rúmlega 40 árum síðan. Þátturinn hefst er vesturfararnir hafa stigið á eimlestina í Leith, en förinni er heitið til Liverpool. Allt í einu kvað við skarpt bh'stur og samtímis hnykktist lestin aftur á bak. Nokkrir litu upp felmtsfullum augum, aðrir báðu fyrir sér, en flestir létu sér nægja að grípa þétt um bríkur sætanna, og áður en menn höfðu jafnað sig eftir þessa óvæntu hreyfingu, rann lestin af stað. Fyrst hægt og þyngslalega, svo smá jókst hraðinn unz menn festu ekki sjónir á því sem fyrir gluggann bar. Fátt var talað; menn litu hver á annan eins og vildu þeir spyrja sessunautana, hvort nú mundi óhætt að varpa frá sér

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.