Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Side 15

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Side 15
H. Kv. JLANDKÖNNUÐURINN BERING 157 þegar Bering konr á staðina. Y.firvöldin voru víðast hvar treg, til að láta honum í té þá aðstoð, sem hann þurfti, og varð hann ýmist að fara að þeim bónarveg eða ógna þeim og knýja þau með valdi til að fram- kvæma skipanir stjórnarinnar. Innan leið- angursmanna hlaut hann sífellt að berjast við leti, drykkjuskap, sviksemi, rógmælgi og tilefnislaus klögumál yfir stjórn hans, sem ýmsir leiðangursmanna sendu til Pét- ursborgar. Flestir menn liefðu lagt árar í bát, og allt fyrirtækið lirunið i rústir hjá þeim, en Bering var enginn meðalmaður. JÞrátt fyrir alla erfiðleika þokaðist leiðang urinn og störf hans áleiðis, þótt hægi gengi, ■og Bering gafst aldrei upp við að finna ráð út úr hverjum ógöngum sem var og afla hjálpar til framkvæmda á þeim störfum, sem honum höfðu verið falin. Þegar kom austur í Síberíu, setti hann á fót skipasmíðastöðvar við stórfljótin, og jafnskjótt og skipin voru fullsmíðuð, séndi hann þau til strandarinnar til rannsókna. Sendi hann þannig sinn leiðangurinn af stað hvort árið 1734 og 1735, og gat hanri þá fyrst farið að snúa sér fyrir alvöru að undirbúningi Kyrrahafsrannsóknanna. En ekki tókst honum samt að koma megin- flutningunum austur til Okötsk fyrr en 1737, enda varð honum það til tafar. að eitt íshafsskipið fórst með allri áhöfn 1736. Þurfti því að búa þangað skip á ný. Kostn- aðurinn við leiðangrana var orðinn gífur- legur eða um 300000 rúblur og var það margföld sú upphæð, sem áætluð var í upp- hafi, og á þessum fyrstu 4 árum hafði leið- angurinn ekkert verulegt framkvæmt, og 1737 var Bering sviftur nokkrum hluta launa sinna. Allt um það hélt hann ótrauð- ur áfram starfi sínu. En erfiðleikunum var ekki lokið, þótt til Okotsk væri komið. Þar þurfti að koma upp bústöðum fyrir allt starfslið hans, sem nú var um 1000 manns og þar við bættist að loftslagið þar var óhollt, og fólkið þjáðist af hitasótt, og Ber- ing sjálfur missti þar heilsuna sakir illrar aðbúðar. Brátt tókst að koma upp tveimur haffærum skipum og hin gömlu skip Ber- ings ,,Gabríel“ og „Fortuna“ voru nú gerð haffær að nýju. Með þessum fjórum skip- um tókst Spangberg að ljúka mælingum og rannsókn Kurileyjanna og austurstrandar Japans að norðan sumurin 1738 og i 730. En til þess að ljúka ferðum' þessum þurfti að eyða miklu af forða þeim og útbúnaði, sem Bering hafði ætlað til Ameríkuferðar- innar. Var undirbúningur hennar því að ýmsu leyti af vanefnum ger, en samt heppn- aðist Bering að smíða enn tvö skip er hann nefndi St. Pétur og St. Pál. En þegar þau voru ferðbúin í ágústmánuði kom Spang- berg, sem verið hafði á heimleið til Péturs- borgar en fengið skipun um að fara á ný til Japan, því að menn báru brigður á, að landabréf hans væru rétt. Bering tafðist því enn við að búa leiðangur hans út á ný, en 8. sept. létu skip hans úr höfn í Okotsk og sigldu til Avachaflóa á austurströnd Kamt- schatka, þar sem leiðangurinn skyldi hafa vetursetu áður en lagt yrði á Kyrrahafið. Ætlun Berings var að vera tvö ár í ferðinni frá Avacha, og liafa vetursetu á vesturströnd Ameríku, en óljiöppin eltu hann þannig, að^ skip, sem flytja skyldi matarbirgðir til Avacha, fórst með öllu innanborðs, og mat- arflutningar á landi fóru einnig í handa- skolum. Þegar Bering því loks lét í haf úr Avachahöfn, 4. júní 1741, hafði hann ein- ungis vistir til 5J/2 mánaðar en seglabúnað- ur og allur reiði skipanna af skornum skammti. Sjálfur stýrði hann St. Pétri með 77 manna áhöfn, en St. Páli stýrði Chirikov og voru þar 76 menn innanborðs. Eins og áður er getið, héldu menn, að land væri austur af Kamtschatka. Til þess að ganga úr skugga um, hvort svo væri sigldi Bering fyrst skipum sínum suðaustur, þar sem hið svonefnda Kompagni land eða Gamaland átti að vera eftir kortum samtíð-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.