Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Blaðsíða 39

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Blaðsíða 39
3í. Kv. Á NÁSTRÁI 181 ast svo Heimi. — E£ hann ætlaði að ná í hana, þá varð að ryðja Heimi úr vegi. Hann hugsaði lengi um þetta. í fyrstu hræddist hann næstum því sjálfan sig, en þegar frá leið, fóru hugsanirnar að verða honum gamalkunnari. Hann fór hreint og beint að hugsa um að drepa Heimi. — Hann gat t. d. farið með honum í róður og fleygt honum fyrir borð; hann vissi, að hann var til þess fær, því að hann var sterkari en Heimir. Þó hætti hann við þetta, því að sjálfur varð hann að koma til lands, og hvað átti hann svo að segja, þegar Heimi vantaði? — Svo fór hann að liugsa um að halda mikið boð. Hann ætlaði að bjóða Heimi í boðið og veita honum svo óspart vín, að hann gæti ltvorki gengið né staðið. Svo ætlaði hann að fylgja honum heim, þegar allir aðrir gestir væru farnir. Áin var mikil og djúp og ekkert handrið á brúnni; hann þurfti ekki annað en að ýta svolítið við Heimi, þá var úti um hann. En honum fannst þetta líka vera óráð. Hann gat ekki látið Heimi fylgdarlausan frá sér fara, þegar hann var sVo drukkinn, að'hann gat hvorki gengið né staðið; þá hlaut hann að hafa fylgt honum sjálfur og auðvitað hrundið honum í ána. — Nei, þetta vár ekki heldur vel til fallið. Hann hugsaði og hugsaði, hugkvæmdist ýmist þetta eða hitt, en ekkert var við liæfi. Hann varð alveg veikur af þessum heila- brotum, lagðist og lá í marga daga. Það var eins og eitthvað væri broti, innan í hon- um og gæti ekki gróið um heilt aftur. En jafnframt því sem hann var sjúkur af hugs- uninni um að ráða Heimi af dögum, þá þótti honurn samt vænt urn hann. Sumarið var gengið í garð og menn fóru að sækja í fuglabjörgin; eins og vant var voru þeir saman, Andrés og Heimir. Þeir fóru í bjarg, sem enginn hafði farið í árum saman; menn voru hræddir við grjóthrun; þrír höfðu farizt, þegar síðast var reynt þar ■og frá því voru liðin átta ár. Andrés var laus við hugarangur sitt; legan hafði bætt honum. Hann gat hugsað um Önnu eins og eitthvað bjart og fagurt, sem einu sinni var honum allt, en nú var dofnað og að engu orðið. Þeir fóru af stað einn morgun við sólar- uþpkomu. Veðri var svo farið, að þeir bjuggust við miklum fugli og þeir spjölluðu um, hvað aðrir mundu segja, þegar þeir kæmu báðir aftur með svo mikla veiði. Það var töluvert langt að ganga, svo að þeir. komu ekki á vettvang fyrr en eftir rúmlega þrjá tíma og þá voru þeir uppgefnir. Þeir lögðust uppi á bjargbrúninni til að hvíla sig. Sólin sneri beint að þeim, þar sem þeir lágu og þar var afar heitt; þeir sofnuðu báðir. — Andrés vaknaði fyrr. Hann sá að Heimir lá alveg úti á brún, og þá skaut honum því í brjóst, að nú væri færi; hann skyldi leita lags og velta Heimi fram af. Það var fljótgert og engan gat grunað neitt; Heimir hafði hrapað í björgunum, það var allt og sumt; heimurinn mundi ganga sinn vánagang eins og áður og hinn dauði brátt gleymast. Hann reis hægt upp, mjakaði sér að Heimi og fór að ýta honum fram á brúnina. Heimir vaknaði og leit forviða framan í Andrés; — hann var í hálfgerðum svefnrof- um; en þegar hann sá illskuna í andliti Andrésar, virtist hann renna grun í, hvað hinn ætlaði sér. „Jesús varðveiti mig! Hvað ertu að gera?“ spurði hann. Þetta voru síð- ustu orð hans; Andrés ýtti honum fram af. Hann stóð og fylgdi honum með augun- urn, meðan hann valt niður bjargið. Fugl- inn flaug upp í bjarginu og svifaði frá því skríkjandi og gargandi. Andrés var alveg utan við sig, — honum var ekki ljóst, hvað hann hefði gert. Nú sá hann, að Heimir skall á klöppinni þar niðri; þá rann það upp fyrir honum, að hann af frjálsum vilja hafði orðið manni að bana. Ótal hugsanir flugu honum í hug; fyrst var hann að hugsa

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.