Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Síða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Síða 27
N. Kv. DÆTUR FRUMSKÓGARINS 169 kné frammi fyrir einum þeirra og á næsta augnabliki sást hnífur blika. Og áður en andartak var liðíð, og án þess að öldung- arnir gætu gefið frá sér nokkurt hljóð, eða búizt til varnar. — hafði þessi kynlega vera rekið þá alla í gegn. Aðeins einum þeirra vannst tími til að rísa á fætur. ,,Blóðsugan!“ æpti hann skelfdur. „Svo er vissulega,“ hljóðaði hið uggvæn- lega svar sem hann fékk. „Það er Blóðsug- an, sem fylgt hefir þér og ættstofni þínum með óslökkvandi hatri. Nú mun hún loks- ins sjá svo um, að þú og félagar þínir kom- izt til hinna eilífu veiðilenda." „Höfðingi pekoanna, sem stendur hér frammi fyrir þér,“ svaraði garnli indíáninn með skjálfandi röddu, „er aldinn að árurn, og hár hans gefur til kynna að hann muni fyrr en varir safnast til feðra sinna. Lífið er honum því ekki mikils virði, og jafnvel á meðan hann var yngri að árum, datt hon- um aldrei í hug að biðja fjandmann sinn vægðar. Og jrað mundi hann heldur ekki gera að þessu sinni, ef sagan segði ekki, að sá er fellur fyrir rýtingi Blóðsugunnar, sé dæmdur til að ráfa friðlaus um, allt til efsta dags. Þess vegna bið ég um vægð.“ \7eran rak upp hásan, óhugðnanlegan hlátur. „Heimskingi! Heldur þú að ég muni nokkru sinni vægja nokkrum af þinni bannfærðu ætt? Hefir þú nokkru sinni sýnt miskunn, hafi hvítur nraður' fallið í hend- ur þér? Jafnvel rauðskinna hefir þú ekki vægt, hafi hann átt eitthvað sökótt við þig. Nei, sannarlega skaltu deyja! Búðu þig í skyndi undir dauða þinn. Tími minn er dýrmætur.“ „Ég mun í jrað minnsta selja líf mitt fullu verði!“ æpti indíánahöfðinginn og hóf tomahawk-öxi sína á loft. En áður en hún félli aftur niður, hafði veran íækið hina blikandi sveðju sína í gegnum hann. Indí- áninn hné dauður til jarðar við hlið félaga siirna. Stór blóðpollur hafði myndast, þar sem þeir lágu. Hinn dularfulli vegandi þurrkaði blóðið af vopni sínu. Því næst dró hann fram ann- an hníf, sem líktist mest biturlegum svarð- flettihnífi og skar með lronum þrjá krossa á enni allra fórnarlamba sinna. Eftir hinar hryllilegu aðfarir hvarf hann út í skóginn, jafnhljóðlega og hann kom. Allt var nú kyrrt um hríð. Nokkru síðar skrjáfaði í runnum í nánd og þrír rauðskinnar komu í Ijós. Þeir nálg- uðust með virðuleik hina — að því er virt- ist — sofandi öldunga. Blóðsugan hafði skil- ið við þá með þeim hætti, að engum gat dottið annað í hug, en að þeir svæfu. Þegar sá er fremstur fór kom auga á krossmörkiir á ennum þeirra, hrökk hann óttasleginn til baka, féll á kné. Þurfti jró nokkuð til þess að skjóta honum skellk í bringu, því það var enginn annarr en Svartifálki. „Hinn mikli andi er á móti oss!“ hrópaði hann, „hann gefur Járnhönd sigur í or- ustum við okkar menn, og leggur blessun sína yfir launmorð Blóðsugunnar.“ Þegar rauðskinnarnir, sem voru í fylgd með Svartafálka, sáu hann krjúpa á kné, héldu þeir að fjandmenn væru í nálægð, og að hann gerði það til þess að dyljast. Krupu þeir því einnig niður. Er þeir höfðu hlustað og beðið nokkra stund, skriðu þeir á fjór- um fótum til húsbónda síns, sem nú hafði jafnað sig að mestu, eftir Itina óvæntu og geigvænlegu sýn. „Sjáið!" mælti hann og benti á líkin. Rauðskinnarnir ráku upp hræðslu- og undrunaróp, er þeir sáu lrvað skeð hafði, og að krossmörkin bentu til þess að Blóð- sugan hefði verið þar að verki. Svartifálki horfði á þá leiftrandi augum og þegar lxann sá hvílíkum ótta þeir voru lostnir, hnyklaði hann brýrnar. „Þegar hermenn vorir,“ tautaði liann „fá að vita, að æðstu og vitrustu menn þjóðar 22

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.