Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Síða 33

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Síða 33
N. Kv. Bókmenntir. Arið 1852 gófu þeir Magnús Grímsson og Jón Árnason út dálítið kver, sem þeir kölluðu íslenzk æfintýri. Var þetta litla kver fyrsta þjóðsagnasafn, sem út hefir kom- ið hér á landi. En ekki mun sala á því hafa verið ör, því að ekki varð framhald af út- gáfunni, enda ekki almennur skilningur þá á gildi slíkra sagna. Það er ekki fyrr en Konráð Maurer vakti athygli íslenzkra fræðimanna á þjóðsögum og gaf út safn ís- lenzkra þjóðsagna á þýzku (Islándische Volksagen der Gegenwort) árið 1860, og byr fékkst til nýrrár útgáfu á íslenzkum þjóðsögum. Hið mikla safn Jóns Árnasonar var síðan gefið út 1862—64. I því safni voru prentaðar sögurnar, sem komu út í kverinu 1852. íslenzk æfintýri M. G. og J. Á. voru fyrir löngu orðin fágæt bók, upplesin eða týnd, að undanskildum fáeinum eintökum, er einstakir bókasafnarar lágu á sem ormar á gulli. Ég, sem þetta rita, á eitt eintak af kverinu, og þykir mér vænna um það, en nokkra aðra bók, sem ég á. Þegar ég fer að heiman, loka ég það jafnan inni 1 járnskáp. Það mun hafa glatt margan bókamann, þegar bókaútgáfan Edda kom með kver þetta á markaðinn í haust. Er það ljósprent- uð útgáfa, sem Litoprent í Reykjavík hefir gert. Mun þetta vera- fyrsta bók, sem er ' Ijósprentuð hér á landi. Tímaritin eru mörg, sem nú eru út gefin á landi voru. En misjöfn eru þau að gæðum og lítil eftirsjá væri að sumurti þeirra, þótt þau hættu göngu sinni. Eitt tímarit ber nú af öllum hinum, hvað glæsileik snertir. Er er það tímaritið Helgafell, sem þeir Magnús Ásgeirsson og Tómas Guðmundsson eru rit- stjórar að. Hefir N.-Kv. borizt 7. h. I. árg. Er í heftinu eftirtalið efni: Utan garðs og innan; Varnir ráðstjórnarríkjanna eftir Sverri Kristjánsson; Þú mátt ekki sofa, kvæði eftir Arnulf Överland; Eftirmæli bókasafns eftir Kristmann Guðmundsson; Symfonia pastoralle eftir Jón Óskar; Heilsu- far og hindurvitni eftir Jóhann Sæmunds- son; Bréf frá lesendum; Léttara hjal; Lá við slysi, kvæði eftir Örn Arnarson og Bók- menntir. Steinn Steinarr er þegar orðinn kunnur fyrir sín sérstæðu ljóð. Eftir hann hafa kom- ið út fjórar ljóðabækur. Seinasta ljóðabók háns: Ferð án fyrirhieits, gefin út af bóka- útgáfunni Heirnskringlu, hefir verið send N.-Kv. Eyrsta kvæði bókarinnar Tileink- unn: ,,Til þín, sem býrð á bak við hugsun rnína, blóðlaus og föl, og speglar ásýnd þína í mínum kalda og annarlega óði. Frá mér, sem horfi úr húini langrar nætur á heimsins blökku dýrð, og reis á fætur með jódyn allra jarða mér í blóði. Og ég var aðeins til i mínu ljóði. Seinasta kvæði bókarinnar, Undirskrift, hefst á þessari vísu: ,,Lesendum þessarar bókar, ef einhverjir eru, hef ég ekkert frekar að segja í raun og veru. Sjá hér er ég sjálfur, og þetta er allur minn auður, hið eina, sem ég hefi að bjóða lifandi og dauður. Alls eru í bókinni 54 kvæði.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.