Nýjar kvöldvökur - 01.12.1925, Blaðsíða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1925, Blaðsíða 3
Ný AR KVÖLDVÖKUR 179 heim við yðar kenningar. Sá efnishyggjumað- ur er ekki til, sem ekki mundi kannast við þá frummyr.d, sem við öll erum runn;n af. Eu jeg sje, að sumar konurnar eru litverpar! Rað er kynlegt. Allir, sem tolla vilja í t'skunni, hljóta að viðuikenna ernishyggjuna sem hina einu og sönnu trúarjátningu og þó verða þeir ávalt hræddir, eða gramir skulum við segja, yfir hinni eðhlegu rotnun líkama vors, eins og hún kemur í Ijós samkvæmt efnislögmáliuu.* »Retta var hálfógeðsleg myndu, sagði Elton greifi, þegar hann kom út úr leikhúsinu og leiddi Díönu Chesney við hönd sjer. Rað er ómögulegt að segja, að hún væri viðhafnarleg.« »Jú, fyrir ormana,« svaraði Lúcíó glaðlega. »En komið þið nú, ungfrú Chesney og þjer Tempest og ungfrú Síbyl! Við skulum koma út í gaiðinn aftur og sjá fluge!dana!« Ressi orð vöktu forvitni manna og hristu þeir af sjer lelðindin, sem seinasta sýningin hafði valdið þeim, og þyrptust þeir nú hlægj- andi og masandi út í garðinn. Relta var ein- mitt í Ijósaskiftunum og þegar við komum út að grasfiötinni, sáum við fjölda dökk-klæddra drengja, sem hlupu hringinn í kring með lugtir í höndunum. Reir voru skjótir í hreyfingum og heyrðist ekkert til þeirra og hoppuðu þeir eins og álfar yfir blómreitina, gegnum runnana og eftir gangstígum og grashjöllum. Margir þeirra klifruðu upp í trjen, fimir og fljótir eins og apar og skildu Ijós eftir, hvar sem þeir fóru. Lýstu þeir þann'g garðinn svo prýðdega, að slík Ijósadýrð hefir tæplega áður sjest, ekki einu sinni við hin heimsfrægu há- tíðahöld í Versölum. Eikurnar og sedrustijen glóðu öll í Ijósum og hver grein var þakin mislitum lugtum, sem tindruðu eins og sljörn- ur. Flugeldar þutu upp í íoftið og mynduðu þar eldlega blómvendi, sveiga og borða. K'ing- um grasllötina voru rauðar og bláar lugtir, en átta eldstrókar gusu upp í hornum garðsins og voru áhorfendurnir agndofa af undrun. Jafnframt þessu leið upplýstur knöttur hægt upp í loftið og sveif yiir höfðum okkar, en út frá honum streymdu mörg hundruð marg- litra fugla og eldflugna, er flögruðu kringum hann örstutta stund og hurfu síðan. AHir klöppuðu lof í lófa við þessa dýrðlegu sjón, en í sömu svifum kom flokkur hvítklæddra dansmeyja hlaupandi eftir grasflötinni. Rær veifuðu löngum silfurborðum með rafstjörnu á m ðjunni og hófu síðan undarlega tryldan en þó yudisfagran dans og ljek undir þýður hljóð- færasláttur. Retta var alt svo dásamlegt, svo fagurt og einkennilegt, að við stóðum agndofa af aðdáun og höfðum ekki sinnu á því að klappa lof í lófa. Við vissum ekkert, hvað tímanum leið, en þá dundi alt í einu þrumu- gnýr og sundraði eldingin hinum lýsandi hnetti í smátætlur. Sumar konurnar hljóðuðu upp yfir s:g, en Lúcíó gekk þá fram fyrir mann- þiöngina, svo að allir máttu hann augum líta. »Retta var ekki annað en leikhúsþruma — jeg segi ykkur það alveg satt,« sagði hann glaðlega en jafnframt háðslaga. »Hún kemur og fer eftir mínum vilja. Rað er bara partur af skemtiskránni — þið megið trúa mjer til þess! Petta er ekkert annað en barnagaman. Áfram, höfuðskepnutetur!* hrópaði hann hlæj- andi og leit tindrandi augum upp í biksvartan himininn. »Lálum þrumurnar óskapast eins og þær vilja!« Og nú dundu við þvílík ósköp, að því verð- ur ekki með orðum lýst — það var eins og fjöllin væru að hrynja. En þegar menn nú voru orðnir sannfærðir um, að þetta væri ekki annað en leikhúsþrumur, þá hvarf þeim óttinn og þótti mörgurn þetta vel af sjer vikið. Smám saman sló rauðum bjarma á himininti, er var eins og endurskin af feikna báli. Bjarmi þessi viitist stafa frá jörðinni og varpaði yfir okkur glórauðri biitu. Hvítklæddu dansmeyj- arnar svifu hringinn í kring og á hin fögru andllt þeirra lagði þennan einkennilega glampa, en yfir höfðum þeiira flögruðu svartvængjaðar verur, leðurblökur, uglur og fiðrildi, eins og þær væru bráðlifandi, en ekki eingöngu leik- hús sjónhverfingar. Enn brá fyrir eldingu og heyrðist þrumuhljóð — en svo hvelfdist næt- himininn yfir okkur, heiður og þöeull og IV

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.