Nýjar kvöldvökur - 01.12.1925, Side 12

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1925, Side 12
188 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. að hálfiíma liðnum var akkerum Ijett. Æsibyr og hart útfall bar okkur óðfluga út úr mynni Schelde-lljótsins, og snemma um morguninn sáum við snekkju eina. Stefndum við á hana og vorum bra'tt í hlje við hana. Kallaði O’Brian eftir bát, og er Eust.che hafði fengið ávísun mína upp á það, er eftir stóð af laun- um hans, kvöddum við hann og óskaði hann okkur allra heilla á heimferðinni. Og slundar- korni síðar vorum við komnir undir vernd breska fánans. VI. Heima. Er upp kom á þilfar snekkjunnar, spurði foringi hennar drembilega, hvaða menn við værum, og svaraði O’Brian því, að við vær- um enskir herfangar, er tekist hefði að komast úr höndum Frakka. »Já, líklega foringjaeíni; jeg hefi heyrt, að einhverjum þeirra hafi tekist að flýja.« »Nafn mitt er O’Brian sjóliðsforingi, herra minn. Getið þjer sannfærst um það, ef þjer lítið í skrá Steels. Og þessi ungi maður, er með mjer er, heit r Pjetur Simplí; er hann foringjaefni og sonarsonur Privilege lávarðar.* Foringinn, sem var kubbslega vaxinn, rauð- bústinn í andliti með klumbunef, blíðkaðist fljótt í viðmóti og bauð okkur niður í farbúð sína. Bar hann þar á borð fyrir okkur ensk- an ost og gamalt sterkt öl. Voru það ef til vill þær bestu góðgerðir, er hægt var að veita okkur. »Mig langar til að vita,« sagði hann,» »hvor- þið hafið hvergi rekist á einn af foringjum mínum, sem var hertekinn meðan jeg var á skyndiferð með skeyti til MiðjarðarhafsfIotans.« »Mætti jeg fyrst fá að heyra nafnið á hinn1 fögru, örskreiðu snekkju yðar?« mælti O’Brian. »Mary,« mælti foringinn. »Hver þó fjand nn! Jú, reyndar hefir fund- um okkar borið saman/ Hann var fluttur til Verdun, en við höfðum þá ánægju að vgrða honum samferða til Montpell er. Rað var ein- staklega prúðmannlegt ungmenni og vel til fara; er ekki rjett?« »Hvað prúðmenskuna áhtærir, skal jeg ekk- ert um segja, því að jeg er ekki skynugur á þá liluti; en hvað snertir klæðaburðinn, hefði hann átt að geta verið sæmilegur; en meðan hann var hjer með mjer, var hann aldrei sæmi- lega til fara. Faðir hans er skraddari, sem jeg skifti við, og tók jeg son hans á sklp mitt sem foringjaefni til þess að kvitta skuld, sem jeg var í hjá honum.« »Petta grunaði mig,« sagði O’Brian og Ijet svo útrætt um þetta. »Hvenær búist þjer við að snúa heimleiðis?« spurði O’Brian, því að við brunnum í skinn- inu af óþolinmæði, því að okkur var farið að langa til að komast heim til Englands. Svaraði hann því, að leiðangur þessi væri þegar úti. Enda væri koma okkar á skip hans næg ástæða til heimfarar, þótt ekkeit væri ann- að. Kvaðst hann snúa heimleiðis strax við næstu vökuskifti. Gladdi þetta okkur mjög og tveim tímum síðar var stefnan tekin á strend- ur Englands. Rrem dögum síðar lögðumst við í lægi við Sp thead. Gengum við á land með foringja snekkjunnar og til aðseturs aðmíráls- ins. Við Ijelum okkur þó nægja, að tilkynna heimkomu okkar á skrifstofu hans, þar eð við þóttumst eigi vera nógu vel til fara til þess að ganga fyrir hann sjálfan. En er Meredith skraddari hafði heitið okkur því, að hafa al- klæðnað tilbúinn handa okkur næsta dag, keyplum við okkur nýja einkennishatta og tók- um okkur síðan gistingu á veitingahúsinu »Gos- brunnurinn«, því að O’Brian þótti ekki sæma að gista í »Bláu dyrastöfunum*, sem einungis var aðsetur nýbakaðra foringjaefna. Aria næsta dag hjeldum við prúðbúnir til aðmírálsins. Tók hann okkur mjög alúðlega og bauð okkur til miðdegisverðar, sem við þáðum með þökk- um. Jeg hafði skrifað móður minni langt brjef strax er jeg kom í land og beið nú svars. (Framh.).

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.