Nýjar kvöldvökur - 01.01.1953, Blaðsíða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1953, Blaðsíða 10
2 UNDIR LJÓNSMERKINU N. Kv. „Heyrðu, Henry,“ sagði annar ungling- anna á halnarbakkanum, „svona bjartar og kyrrar nætur eins og þær eru hér í Feneyj- um, þekkjast víst ekki á þokueyjunni ykkar jrarna nyrðra?“ „Jú, víst er svo,“ svaraði hinn státinn; „eg hef verið þar á gangi við lendingarþrepin á sankti Páls bryggju og séð tunglið varpa silfurljóma á Thamesfljótið, meðan upp- ljómuð stórhýsi spegluðust í vatninu allt í kring og bátar skriðu fram og aftur eins og hér. Eg verð að kannast við, að það er ekki oft sem kvöldin í Lundúnum eru svona kyrr og björt, en hér hjá ykkur virðist það vera venjulegt.“ „Þú minntist einhvern tíma á, að stjörn- urnar á himninum í ættlandi þínu ljómuðu ekki eins skært og hér hjá okkur.“ „Eg held líka, að þær geri það ekki, Mattheus. Eg minnist þess að minnsta kosti, að fyrsta kvöldið, sem eg var í Feneyjum, furðaði eg mig á, hve blikandi stjörnuhim- inninn ykkar var.“ „Ertu þá ekki glaður yfir því að faðir þinn fór með þig hingað?“ spurði ítalinn. Henry Hammond þagði snöggvast við. „Eg hef haft gaman af öllu, sem eg hef séð hér syðra, og eins af því að hafa lært að tala ykkar tungu,“ svaraði hann síðan. „En eg skemmti mér samt betur í Lundúnum. Faðir minn liélt tvo eða þrjá námspilta, sem eg lék mér við, þegar við höfðum lokað búð- inni, og oft voru uppþot { götunni, en aldrei urðu slys að þeim. Stöku sinnum urðu áflog milli námspilta úr tveimur borgarhverfum; þá var kallað :„Allir eitt!“ í öllum götun- um, og í hverri einustu verzlunarbúð gripu námspiltarnir stafi sína, létu kaupendurna eiga sig og þutu út til að hjálpa félögum sín- um. Síðan var barizt og flogizt á, þangað til varðliðið kom og skildi þá. Auk þess höfð- um við markskot, sýningar, vorhátíðir og ýmiss konar gleðskap. Almenningur skemmti sér miklu rneira en Júð gerið hér og var yfirleitt miklu frjálsari. Jarðeigendurn- ir, sem hjá okkur samsvara höfðingjaættun- um hér í Feneyjum, voru ekki í miklurn meturn í Lundúunum. Þið eruð verzlunar- menn, og Jrað erum við líka; en í Lundún- um hafa kaupmennirnir völdin; þeir láta sig jarðeigendurna engu skipta og konung- inn litlum mun meira. Ef einhver gerir eitt- livað af sér, er hann hreint og beint kallaður fyrir rétt. Við þurftum ekki að óttast leyni- lega ákærendur, hver mátti hugsa og tala eins og hann vildi. Þar var ekkert Markúsar- ljón með gapandi bronsgini, sem hver ónefndur ákærandi gat fleygt í nafnlausum bréfum með sakargiftum á hendur einhverj- um grunuðum manni, og hjá okkur var ekki heldur neitt tíumannaráð." „Þey, þey, Henry!“ hvíslaði hinn og hnippti í liandlegg hans. „Minnstu ekki á ráðið einu orði — alls staðar geta verið njósnarar." Hann horði óttasleginn í kringum sig, til að fullvissa sig um, að enginn hleraði orð þeirra. „Já, þarna sérðu,“ mælti félagi hans. „í Lundúnum Jaarf enginn að óttast um sig, ef hann hefur rólega samvizku, en hér getur enginn verið óhultur um, að hann liggi ekki á morgun langt niðri í fangaklefa hallarinn- ar og hafi jafnvel enga hugmynd um, hvað liann hafi brotið af sér.“ „Uss-uss, Henry!“ mælti Mattheus áhyggjufullur, „við skulum heldur tala um eitthvað annað. Um þetta máttu tala í Eng- landi, en það er ekki ráðlegt hér. Auðvitað er margt hér í Feneyjum, sem Jryrfti að laga; en ekki verðnr á allt kosið, og við höfum annars margt, sem við megum vera hreykn- ir af.“ „Þið hafið Jrað,“ svaraði Henry, „og Jnð er dásamlegt að hugsa sér, að íbúarnir á þessum dreifðu hólmum eru einvaldir á hafinu, mesta verzlunarjrjóð í heimi, og öll ríki Norðurálfunnar vilja hafa liana sér vin- veitta. Ef eg væri ekki Englendingur, vildi eg ekkert annað vera en Feneyingur."

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.