Nýjar kvöldvökur - 01.01.1953, Page 22

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1953, Page 22
14 UNDIR LJÓNSMERKINU N. ICv. bátinn til sín, rétt um leið og síðasti verj- andi þeirra féll. Foringi árásarmannanna bölvaði hátt og bjóst til að stökkva ofan í bát Henrys, en eins og elding þreif hann árina, um leið og árásarmaðurinn myndaði sig til stökks, og rak hana svo duglega í höfuð hans, að hann byltist undan högginu og skall niður í vatn- ið milli bátanna, svo að skvampaði í. Hinir árásarmennirnir ráku upp æðis- gengið hefndaróp, en bátur Henrys þaut eins og kólfi væri skotið niður eftir síkinu og hvarf brátt augsýn Iiinna. „Verið hughraustar, ungfrúr!“ mælti Henry. ,,Það er engin hætta á, að þeir elti okkur. Þeim veitir ekki af tímanum til að draga foringja sinn upp úr síkinu, og áður en þeir hafa draslað honum upp í bátinn, verðum við komnir alltof langt til þess, að þeir nái okkur.“ „En hvar er frúin?“ mælti María, sem virtist liafa náð sér nokkuð eftir hræðsluna; „hvað verður um hana?“ Hún átti við kennslukonuna. „Hún varð eftir í bátnum," svaraði Henry; við þurfum ekkert að óttast um hana — hún sér um sig. Arásin var bersýni- lega gerð í því skyni að nerna ykkur á brott, og úr því að þið sluppuð báðar, hugsar sjálf- sagt enginn um frúna. Hún virtist vera al- veg utan við sig við árásina, því að þegar eg þreif yður yfir í bátinn til mín, þá ríghélt hún sér svo í kjólinn yðar, að eg gæti bezt trúað, að hún hafi rifið hann.“ „Veiztu í rauninni, hvar við eigum heima?“ mælti María rétt á eftir og var hissa. „Þú stýrir alveg í rétta átt heim.“ „Já, til hallar Polanianna," svaraði Henry. „Mér hefur hlotnazt sú sæmd að vera vinur Mattheusar, frænda ykkar systra; við rerum eitt sinn fram hjá bát ykkar á síkinu mikla, og þá sagði hann mér, hverjar þið væruð.“ „Þér eruð vinur Mattheusar?“ mælti Maria steinhissa. „Eg bið afsökunar, Iierra minn; eg hélt þið væruð ræðarar — það er svo dimmt, að ekkert sést greinilega, og svo er Jrað ekki algengt, að menn af góðum ætt- um rói sjálfir." „Eg er Englendingur, ungfrú, og vanur að æfa líkamann, eftir að skyggja tekur, þeg- ar enginn þekkir mig, þá er Beppó með mér.“ „Við systurnar þökkum ykkur af öllu hjarta fyrir lijálpina, sem þið veittuð okk- ur,“ mælti María þakklátlega; „við vorum í liægum skriði eftir síkinu mikla, þegar óvenjustór, dökkur bátur renndi hratt út úr einu hliðarsíkinu og var nærri því búinn að sökkva okkur. Ræðarar okkar kölluðu til hans, en ekki varð hjá því komizt að rekast á. Vopnaðir menn stukku yfir í okkar bát, og allt lenti { bardaga og ósköpum, svo að eg hélt, að bátnum mundi hvolfa. Annar ræð- arinn okkar féll útbyrðis og Jósef gamli hneig dauður niður — þá kornuð þér og félagi yðar, jDegar hættan var mest, og björg- uðuð okkur.“ „Eg er hræddur um, að eg hafi tekið nokkuð harkalega á ykkur,“ mælti Henry, „en það var enginn tími til að vera kurteis. — Nú erurn við hjá höll föður yðar.“ Báturinn lagðist við þrepin, Henry steig á land, hringdi dyrabjöllunni og hjálpaði systrunum upp á bakkann. Vængjahurðirn- ar voru opnaðar og út komu tveir J^jónar með blys; þeir settu upp undrunarsvip, þeg- ar Jreir sáu systurnar koma einar heim í fylgd með aðeins tveim ókunnum mönnum. „A morgun ætla eg að levfa mér að spyrja um líðan ungfrúnna,“ mælti Henry og bjóst til að ýta aftur frá landi. „Nei, engan veginn,“ svaraði María, „þér verðið að koma inn til föður okkar; hann mundi ávíta okkur, ef við létum bjargvætti okkar fara, svo að hann fengi ekki tækifæri til að votta þakklæti sitt.“ Henry hneigði sig og gekk inn með þeim. Þær leiddu hann inn í rúmgott og glæsilega

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.