Nýjar kvöldvökur - 01.01.1953, Page 45
N. Kv.
Steindór Steindórsson.
Bækur.
Einar Benediktsson: Laust mál I—II.
Steingrímur J. Þorsteinsson bjó til
prentunar .— Rvík 1952. ísafoldar-
prentsmiðja.
Fyrir nokkrum árum gaf ísafoldarprent-
smiðja út ljóðmæli Einars Benediktssonar í
3 myndarlegum bindum. Fylgdi þeim rit-
gerð eftir Guðmund Finnbogason. Útgáfa
sú varð vinsæl, sem von var, því að ýmsar
ljóðabækur hans höfðu þá verið ófáanlegar
um skeið.
Nú hefur sama forlag sent frá sér úrval úr
lausu máli Einars Benediktssonar. Kennir
þar margra grasa, því að Einar kom víða við
um dagana, skrifaði sögur, bókmenntagrein-
ar, greinar um fjölmörg viðfangsefni þjóð-
félagsins, heimspekihugleiðingar, sagnfræði
og fleira. Þótt þessar ritsmíðar hafi vitanlega
verið misjafnar að gæðum er þeim öllum
sameiginlegt, að þær bera merki hins stór-
gáfaða, fjölmenntaða og skapríka höfundar,
og stíl þess manns, sem við móðurhné lærði
þau sannindi, „að orð var á íslenzku til um
allt, sem var hugsað á jörðu.“
Það hefur engan veginn verið létt verk að
velja úr hinum fjöldamörgu ritsmíðum höf-
undarins. En svo virðist sem Steingrími
prófessor hafi tekizt það prýðilega. Að
minnsta kosti mun lesandinn enga grein
kjósa úr safninu, en ekki er fyrir það að
synja, að sumir mundu hafa kosið fleira.
Þannig virðist mér að birta hefði mátt að
ósekju dóm Einars um biblíuljóðin, þótt
harður sé, og gaman hefði verið að fá fleira
af greinunum um Grænlandsmálin, svo að
eitthvað sé nefnt.
Það er rnikill fengur í bók þessari, því að
mikill þorri þeirra ritsmíða, sem þar er að
finna, er dreifður í blöðum og tímaritum,
sem mörg er nú hvergi að fá, nema í söfnum.
Hafa því þeir, sem að útgáfunni standa unn-
ið þarft verk með henni. Og fyrir hvern
þann, sem vill kynnast Einari Benedikts-
syni sem skákli og rnanni er bók þessi ómet-
anleg. Menn geta verið höf. ósammála, en
alls staðar er eitthvað nýtt, snjallar hug-
rnyndir og djúpur skilningur á viðfangsefn-
inu. — Rúmið leyfir ekki að ritað sé langt
mál um hið lausa mál Einars, enda verða
menn að lesa það sjálfir og lesa það vel.
Þá hefur Steingrímur prófessor samið all-
langa ævisögu Einars Benediktssonar, sem
fyllir mikinn hluta af síðara bindinu. Er
æviferill skáldsins rakinn þar af mikill ná-
kvæmni, og er ævisagan nauðsynlegur inn-
gangur til skilnings bæði á skáldinu og eink-
um þó manninum. Og þótt aðdáunin á
skáldinu sé e. t. v. sums staðar í mesta lagi,
þá er ævisagan rituð af þeirri hófsemd, hlýju
og réttdæmi, sem nauðsynlegt er, til þess að
gera góða ævisögu.
Sigurður Breiðfjörð: Ljóðasafu I. —
Rvík 1952. ísafoldai'prentsmiðja.
Með ljóðasafni þessu er hafin útgáfa á öll-
um ljóðmælum Sigurðar Breiðfjörðs, er
áætlað að þau verði 3 bindi. — Sveinbjörn
Sigurjónsson magister sér um útgáfuna.
Enda þótt nokkuð sé nú tekið að fenna
yfir minningu Sigurðar' Breiðfjörðs, þá er
vert að minnast þess, að nm sína daga og
lengi þar á eftir var hann vinsælasta skáld
þjóðarinnar. Að vísu munu rímur lians hafa
notið mestra vinsælda, en þjóðin unni einn-
ig Ijóðum hans. Lipurð þeirra, léttleiki og
gagnsemi beindi þeim leið að hjarta alþýð-