Tjaldbúðin - 01.01.1899, Síða 12
-10-
þannig var kirkjufjelagið myndað. Sjera Jón
Bjarnason liafði komið aptur vestur um haf
sumarið 1884. “ llinn fyrsti lúterski söfnuður
í AVinnipeg ” rjeð hann fyrir prest sinn.
Bæði hann og crindsrekar fyiúr íslenzku söfn-
uðina í Manitoba voru ú íundi þessum.
Frímann B. Anderson er höfundur skóla-
míilsins. Hann ritaði allmikla grein í “Leif:'
27 júní 1884 um “ menntun og framfarir Is-
lendinga í Ameríkn.'’ Þar kemur harin fram
með skólahugmynd Vestur-íslendinga í öllum
aðalatriðum, eins og hún hefur jafnan verið
síðan. l.júlis. íi. var svo haldinn alrnennur
fundur í Wiunipeg tií að ræða um skólamálið.
Fundarstjóri var kosinn M. Pálsson og B. L.
Baldvinsson fundarskrifari, en framsögumaður
málsins var F B. Anderson. Þegar umræðum
var lokið, “bar forseti undir fundinn, hvort
vilji manna væri, að tilraun yrði gjörð að koma
á fót íslenzkri menntastofnun hjer vestan hafs,
er yrði sameiginleg eign allra Islendinga í
Vesturheimi, og allir gætu því haft aðgang að.
Og var það samþykkt í einu hljóði. Þá var
kosin níu manna nefnd, er skyldi hafa á hendi
allar framkvæmdir í málinu á þann hátt, er
þeir álita, að bezt gegndi. Kjörtími nefndar-
innar var ákveðinn til næsta nýárs ” (“Leifur”
2. ár nr. 10). Allmikið var svo rætt og ritað