Tjaldbúðin - 01.01.1899, Side 15
-13-
fyrir íslaÆid” (1878—1880) voru fyrirmynd
hennar. Fyrsta ritnefnd “Sam.” var B. L.
Baldvinsson, sjera Jón Bjarnason (ritstjóri),
Friðjón Friðriksson og P&ll S. Bardal (fjehirðir).
Sjera Hans varð vegna “heimilisástæðna ”
að fara af kirkjuþinginu, áður en kosning em-
bættismanna fór fram. Kosningin fór & þessa
leið .- “ Formaður sjera -lón Bjarnason, vara-
formaður Magnfts Pálsson, skrifari Friðjón Frið-
riksson, varaskrifari Stefán Guðmundsson, fje-
hirðir Arni Friðriksson og varafjehirðir Sig-
urður Mýrdal.
ANNAÐ KIRKJUÞINGiÐ
varhaldið í júnímánuði 1886áGarðar í Noi'ður-
Dakota.—Sjera Hans B. Thoi'grimsen var þ&
fluttur burtu frá íslenzku söfnuðunum í Dakota.
Og sjera Friðrik J. Bergmann orðinn prestur í
stað hans. Á kirkjuþingi þessu voru rædd
ýms mál og gjörðar ýmsar fundarsamþykktir.
En fremur reyndust þær samþykktir þýðingar-
litlar, eins og venja er til með samþykktir
kirkjuþingsins. Á kirkjuþingi þessu naut
bindindismálið meiri hylli, en á seinni þingum
kirkjufjelagsins.—Á kirkjuþingi þessu mættu
erindsrekar frá 14 söfnuðum, eius og árið áður,
og t.veir prestar: sjera Jón Bjarnason og sjera
Friðrik J. Bergmann.