Tjaldbúðin - 01.01.1899, Qupperneq 23
—21—
Með fram átti þá að minnast framfara þeirra, er
orðið hafa á íslandi, síðan þingbundin stjórn
komst þar á, En brátt sáu formenn kirkjufje-
lagsins, að þetta hátíðahald 2. ágúst kom í bága
við þessa kenning þeirra: “Island er að blása
upp, bæði landið sjálft og þjóðin í öllum skiln-
ingi.” Þeir hafa þess vegna reynt til, að fá há-
tíðardeginum breytt og hátíðahald þetta sett í
samband við kirkjuþingin. Eptir nokkra
vafninga hafa þeir valið l7. júní fyrir þjóðhá-
tíðardag. Það er fæðingardagur Jóns Sigurðs-
sonar, og auk þess ef til vill sá dagur, er al-
þing Islendinga í fornöld var sett í fyrsta sinni.
I Winnipegbæ virðast fieiri íslendingar vera
með 2. ágúst. En í nýlendum íslendinga úti á
landi eru fiestir með 17. júní. Það ltemur af
því, að bændum er hagkvæmara, vegna upp-
skeruanna sinna, að halda hátíð þessa í júní-
mánuði en ágústmánuði. Það er vonandi, að
Vestur-Islendingar komi sjer saman um annan-
hvorn þessara daga, áður en langt líður. En
líklegast verður það samt eigi fýrr, en einhver
fastákveðinn þjóðhátíðardagur kemst á fót
lieima á íslandi. Sá dagur mundi óefað einnig
verða þjóðhátíðardagur Vestur-íslendinga.
SJÖUNDA ICIRKJ UÞINGIÐ
var haldið í Winnipeg í júním. 1891. Á þessu
kirkjuþingi mættu 4 prestar (sjera Jón, sjera