Tjaldbúðin - 01.01.1899, Side 26
—24—
ÁTTUNDA KIRKJUÞINGIÐ
var lialdið í júnímán. 1892 á Garðar í Norður-
Dakota. Á kirkjuþingi þessu mættu 3 prestar
kirkjufjelagsins, en sjera. Jón gat eigi sótt
kirkjuþingið vegna vanlieilsu. Auk prestanna
mættu erindsrekar fyrir 14 söfnuði.
I sambandi við þetta kirkjuþing iná minn-
ast á ársritið “Aldamót.” Prestar kirkjufje-
lagsins komu þessu riti á fót haustið 1891.
“Ársrit presta i Þórsnesþingi ” var fyrirmynd
þess.. Kirkjufjelagið fjekk þannig 2 kii kjuieg
tímarit: “Sameininguna ” og “Aldamót.”
Sjera Jón hefur skrifað mest í “ Sam.” og sjera
Friðrik í “Aldamót.” í rifdómi um “Aldamót”
(“Heimskringla” 23. marz 1899) stendur meðal
annars:
“ Aðaleinkenni þessara rithöfunda, sjera
Jóns Bjarnasonar og sjera Friðriks Bergmanns,
eins og þan koma frarn í “ Sameiningunni ” og
“ Aldamótum,” eru þessi:
1. Ritmál þeirra er “ Vestur-íslenzka ” í
betra meðallagi.
2. Sjálfhælnin, Allt, sem þeir rita um
fjelagsmál íslendinga, vii'ðast þeirrita eingöngu
sjálfum sjer til dýrðar: lof uin sjálfa þá en
ámæli um aðra. En þar við bætist, að lofið er
alveg ástæðulaust og ámælin hófiaus.