Tjaldbúðin - 01.01.1899, Side 29
-27
úr flokki Vestar-Íslendiníra, sem hafa gengið á
skóla og lesið guðfræði, hafa verið vígðir til
prestskapar, þótt þeir eigi ltafl tekið venju-
leg próf. Þetta er alveg sama, og gjört var
heima á íslandi, að því er sjera Pjetur Guð-
mundsson og sjera Jón Straumfjörð snerti.
Auk þeirra, sem nefndir haf'a verið, mfi geta
þess, að sjera Jón J.CIemens var vígður prestur
Argyle-safnaða á kirkjuþíngi í Argyle 1896.
Hin aðferðin er að útvega presta heiman frá Is-
landi. Forseti og varaforseti kij’kjufjelagsins
liafa á hönduin framkvæmdir í því efni. Þann-
ig rjeðu þeir fyrir hönd kirkjufjelagsins sjera
Odd V. Gislason vestur um haf sumarið 1894.
Hann var ráðinn af kirkjufjelaginu til þess að
vera piestur sar'naðanna í Nýja Islandi og Sel-
kirk í stað sjera Magnúsar, sem þá var orðinn
prestur Únítara. Eptir skýrslum kirkjufjelags-
ins (1893) mátti hann búast við að þjóna 5
söfnuðum og fá $500 í árslaun. En þetta reynd-
ist nokkuð á annan veg. Sumir af þessum
söfnuðum virðast hafa verið liðnir undir lok.
Og sú varð brátt reyndin á, að hann aðallega
átti að þjöna einum söfnuði og hafa $100 í árs-
laun. Sjera Oddur hefur orðið að gefa sig við
öðrum störfum auk prestskapar til þess að geta
unnið fyrir sjei' og sínum. Hann er því eigi
nema “að nokkru ” í þjónusiu Liikjuíjclags-*