Tjaldbúðin - 01.12.1900, Side 7

Tjaldbúðin - 01.12.1900, Side 7
5 vegna opnast augu þín? I’ú sprettur upp í há- sætinu. Þó skelfur og nötrar eins og hrísla. Tókstu eptir hendinni, sem skrifaði ókunnug orð á vegginn, orð, er þú ekki skilur? Skelfur þú fyrir ókunnri hendi og ókunnum orðum? Jeg skal segja þjer, — því Daníel hefur skýrt frá því, — hverja þýðing þetta hefur. Höndin var hönd hins almáttuga guðs, konungs himins og jarðar. Pú hefur gjört uppreisn gegn honum. En hann ritaði á vegginn óbeygjanlegan dóm: »Mene, mene, tekel upharsin: Guð hefur talið ríkisár þín og leitt þau til enda, Þú ert veginn í skálum og ljettvægur fundinn. Þitt ríki er deilt og gefið Medurn og Persum« Á þessari nóttu lætur þú líf þitt. Dómurinn byrjar undir eins. Jeg heyri til Sýrusar og manna hans. Hann hefur í nótt veitt fljótinu úr farvegi sínum. Með herliði sínu hefur hann komizt eptir þurrum farvegi þess alla leið inn í borgina. Með brugðnum sverðum hlaupa hermennirnir upp að hallardyrunum og brjótast inn. Borðum og vínkerum er velt um koll. Vínið flóir yfir borð og bekki. Dauða- drukknir menn geta enga vörn veitt. Peir eru allir höggnir niður á svipstundu. Blóð þeirra blandast við vínið og rennur í lækjum á gólfinu. Konungurinn er veginn í hásætinu. Hann er færður úr konungsskrúðanum og líki hans mis- þyrmt. Ljósin slokkna. Myrkur, dauðamyrkur,

x

Tjaldbúðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.