Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 9

Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 9
— 7 dýrmætt læknislyf í mörgum líkamlegum sjúk- dómum. Án vínandans stæðu læknar opt ráða- lausir yfir sárþjáðum sjúklingi. Þótt þeir þekktu sjúknaðinn og vissu meðalið gegn honum, þá væru þeir opt og einatt ráðalausir, ef þeir hefðu eigi vlnandann og gætu með honum búið til læknis- lyf sín. Mörgum efnum í náttúrunni er þannig varið, að þau eru góð læknislyf við ýmsum líkamlegum sjúkdómum. En þessi sömu efni eru bráðdrepandi eitur, ef menn reyna að hafa þau til næringar líkamanum. Þannig er því varið með flestar eiturtegundir, sem vjer þekkjum. Eitrin cru þannig i sjálfu sjer góð, en dauðinn er vís, ef þeim er misbeitt. Yínandinn er seindrepandi eiturtegund. Hann er í sjálfu sjer góður og gagnlegur. En misbeiting hans er skaðlegri en misbeiting annara eiturtegunda. Vínandinn hefur ekkert næringarefni fyrir líkama mannsins. Öll víndrykkja er þannig gagnslaus. En það er ekki nóg. Öll vin- drykkja er skaðlegt eitur fyrir líkamann. Og vínandaeitrið er afarhættulegt, því það sækir sjerstaklega að viðkvæmasta og þýðingarmesta hluta líkamans, heilanum. Þetta kemur ljós- lega fram, hvenær sem einhver verður vín- drukkinn. Heilinn er þá allur umflotinn vökva vínandans. Heilinn verður afllaus og getur eigi

x

Tjaldbúðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.